Profile
Blog
Photos
Videos
Sæl verið þið kæru vinir og ættingjar :)
Okkur tvíeykinu góða langaði til að bjóða ykkur með þessu ferðabloggi okkar að fylgjast örlítið með ferðum okkur í gegnum S-Austur Asíu.
Bakpokarnir eru tilbúin til að láta tuska sig til í gegnum ótal flugvelli, stórborgir, frumskóga, strendur og fleiri staði, greyin. Það er vægast sagt mikið ævintýri framundan hjá okkur og er spenningurinn að ná hámarki.
Svo að við segjum ykkur örlítið frá næstu dögum þá er planið þannig að við leggjum af stað þann 8. janúar frá Keflavík og höldum til Köben þar sem við gistum eina nótt. Daginn eftir hefst fyrir alvöru bakpokabrasið hjá okkur en við tökum flug klukkan 14:00 til Dubai og þar skiptum við um vél og höldum til Hong Kong. Þar munum við stoppa í rúma 7 tíma þar til að við tökum síðasta flugið í bili til Bangkok og lendum loksins þar kl. 23:30 þann 10. janúar! Ekki lítið ferðalag þetta en við tökum öllum ævintýrum fagnandi :D
Perla hefur setið sveitt við að pakka öllum þeim plástrum og lyfjum sem hún hefur fundið og er hún algjörlega að fara hinn gullna meðalA veg í þeim efnum. Gummi er aftur á móti heldur rólegri :)
Þá er ekkert í stöðinni nema að leggja af stað í stuðið, og biðja ykkur vel að lifa á meðan. Hlökkum mikið til að sjá ykkur eftir þrjá mánuði.
Með framandi fjöri og ferðahug, Gummi & Perla.
- comments
Lára Halla Sigurðardóttir Hlakka til að fylgjast með ykkur snillingarnir mínir! :)
Björg M Éggetsvosvariðþaðkrakkar. Algjörlega á innsoginu. Hjálpi mér hvað ég hlakka til að lesa um ævintýri ykkar! Dugleg að blogga svo. Gangið nú á öruggum Guðsvegum. Langflottust. Lovjú.
Edda Dögg Góða ferð :D Ég hlakka ekkert smá til að fá að fylgjast með :D
Hallgrímur Sverrisson Góða ferð . Megi gæfa fylgja ykkur alla leið.
Guðlaug En spennandi! Farið varlega :)
Soffa Ótrúlega gaman að þessu, hlakka mikið til að fylgjast með yndin mín. Er mjög spennt að lesa nýja færslu :)
Laura Sch. Thorsteinsson Njótið ferðarinnar elskurnar. Guð geymi ykkur ma og pa
Dagný Vava langt ferdalag en thid farid lett med thad! Hlakka til ad fylgjast med ykkur snillingar :D