Profile
Blog
Photos
Videos
Góða kvöldið elsku vinir og ættingjar!
Flugdagarnir ógurlegu sem ætluðu engan endi að taka gengu agalega vel, Emirates er allt annað en slor og var dekrað við okkur alla leið. Við prufuðum eina 3 vikna gamla vél, og síðan prufuðum við líka Airbus - sem er ein stærsta flugvél í heimi t.d. með tvíbreiðum stiga um borð. Í einu fluginu okkar lentum við við hliðina á ástföngu pari í 9.veldi - sem hætti ekki í sleik og meðí alla leiðina. Agalegt alveg, og það var erfiðara sagt en gert að hlægja ekki!
Í Danmörku gistum við hjá Sigga frænda Gumma, sem er gamall hippi og mikill meistari með meiru. Hann sagði okkur snar grillaðar sögur af gömlu Christianiu sem við segjum ykkur við tækifæri.
En núna erum við sem sagt komin til Thailands, og búin að vera í tvo daga í ferðamannabænum Pattaya. Umferðin hérna er klikkuð, og það þarf doktorsgráðu í útsjónarsemi til þess að komast yfir göturnar hér. Sólin skín hátt á lofti, og flugurnar hafa sem betur fer haldið sig víðs fjarri, sem og lang flestar pöddurnar. Við erum bara búin að finna 2 pínu litlar kóngulær inni hjá okkur og nokkra maura. Ó hvað við vonum að það haldist þannig!!
Maturinn - okay sæll. Ég veit ekki alveg með hann. Enda skelltum við okkur á KFC í hádeginu fyrsta daginn og Pizza Hut um kvöldið. Flottust. En þetta smám saman kemur og við fengum okkur thailenskan mat í kvöld.
Við erum búin að vera svakalegir ævintýrafrömuðir síðustu daga. Héldum á RISA eiturslöngu, horfðum á Muay Thai bardaga, skelltum okkur á Jet Ski (þegar Gummi spurði um reglurnar, var svarað: "No rules, just don't crash"), og löbbuðum niður "Walking street" í Pattaya. Við báðum stúlkuna í móttökunni sem sagt um að mæla með einhverju skemmtilegu að gera og fengum það ráð um að rölta um þá götu. Héldum að þetta yrði agalega kósý, en þetta var sem sagt rauða hverfið" í Pattaya. Eitt orð: HAKK. En þar voru furðulega margar stúlkur með frekar stórt adams epli :P
En ferðalagið heldur áfram. Núna erum Við erum við sem sagt komin til Bangkok og í fyrramálið heldur leiðin áfram til norður Thailands, til Chiang Mai og Pai. Þar á sveitasælan að ráða ríkjum og tökum við því mjög fagnandi, enda töluverð læti og mengun í Bangkok.
Við verðum að viðurkenna að bakpokarnir okkar eru ansi pakkaðir, og við höldum að við höfum tekið aðeins of mikið af fötum með okkur. En axlir okkar eru enn á lífi, mögulega því að þakka að hér kostar u.þ.b. 400 ISK að detta í 30-60 mín. nudd, og höfum við svo sannarlega skella okkur í eitt slíkt.
Það er ótrúlega skrítin tilfinning að vera komin svona lengst út í heim, en hrikalega spennandi á sama tíma. Dægurvillan segir mikið til sín, og það er erfiðara sagt að snúa sólhringnum við. En þetta smám saman kemur allt saman og við lærum á lífið hérna úti betur með hverjum deginum.
Knús til ykkar heima sem fylgist með ferðinni. Bestu kveðju, Gummi & Perla.
- comments
Laura Sch. Thorsteinsson Frábært elskurnar - þviílík ævintýri strax á fyrstu dögunum. Var að vona að slangan á myndinni væri úr plasti ! Guð geymi ykkur Mamý
Bjöllan Vil fá frekara updeit á ástfangna parið. Fylgist vel með. Knús.
IE Siggaliggaláá Ohh æðislegt! LOL með parið!! :D Hlakka til að heyra meira frá ævintýrunum ykkar elskurnar mínar! kv. Ein sjúklega öfundsjúk ;)
Lára Halla Sigurðardóttir Lítið á bakpokaburðinn sem æfingu og komið sjöfalt sterkari heim. Hljómar vel og hlakka til að fylgjst með ævintýrum ykkar. Með kveðju úr frostinu.
Ólöf Ösp Frábært að heyra af ykkur, skemmtilegt að lenda í svona ævintýrum. Bið að heilsa öllum tælendingunum ;)
Guðlaug Glæsilegt allt saman! Njótið sveitasælunnar í Chiang Mai og Pai og meððí!