Profile
Blog
Photos
Videos
28. Nóvember 2013
Lentum i Bangkok um hádegi og vorum alltof spennt að komast ut af flugvellinum og komast til Tælands !
Það tók hins vegar sinn tima, vegabréfseftirlitið gekk mjög hægt, fullt af fólki að koma inn til landsins en fá hlið til að komast i gegn, biðin eftir stimplinum tók tvær klukkustundir og þegar við loksins komumst i gegn biðu bakpokarnir eftir okkur, sem betur fer.
Röltum útaf flugvellinum þar sem þessi yndæla kona tók a móti okkur með bros a vör og skilti sem à stoð "Amar Bjamason" við heilsuðum og hlogum að þessu, hún fylgdi okkur að bílnum sem skutlaði okkur a hótelið.
Þegar við settumst inn i bílinn spurði bílstjórinn " old road? Not new road" endur tók þetta nokkrum sinnum og við alltaf jafn stressuð að hann væri að fara með okkur vitlaust þvi við vorum ju a leiðinni a new road guesthouse. Að lokum föttuðum við að hann var að grínast, hlogum og horfnum utum gluggann spennt að komast a áfangastað.
Komum uppá litið kruttlegt hotelherbergi hentum af okkur töskunum og rúmum ut að Skoða Bangkok, við vorum ekki lengi a tölti nú áður en við föttuðum að fyrir 500 baht seðilinn okkar værum við ekki að fara kaupa neitt a götunni, fórum þvi til baka a hótelið , borguðum þar dyrindis tælenskan mat með stórum Bjór a 280baht = 1200kr
Eftir matinn röltum við i 7/11 til að kaupa vatn og smá snarl til að hafa i herberginu.
A hótelinu var svo kynningarfundur um tæland hvað væri hægt að gera og allskonar ferðir.
Eftir fundinn vorum við orðin alveg uppgefin eftir flug og tíma mismun svo við sloppuðum bara af og skoðuðum hvað gera skildi daginn eftir.
29. Nóvember föstudagur
Morgunmatur a hótelinu og svo batur að Grand Palace, þar röltum við um eins og allir hinir turistarnir, og borguðum 1000 baht saman (~5000kr) til að fa að skoða Temple of the Emerald Buddha, þar þurftum við að klæða okkur ur skonum og vera siðsamlega kllædd til að vera hleypt inn.
VÁ ! Þetta var magnað! Þurftum að setjast niður a gólfið og svo horfðum við i kringum okkur heilluð af þessari fegurð, allt i gulli og þvílík nákvæmni i smáatriðum, sátum og skoðuðum, róuðumst, heilluðumst, þetta var stórkostlegt !
Fyrir alla sem ætla fara til Tælands þá mælum við með þessu, engar myndavélar leyfðar inni svo þið verðið bara mæta a staðinn og upplifa.
Héldum áfram að Skoða allskonar byggingar, háar og lágar, gylltar og litrikar.
Eftir allt þetta rölt i sólinni vorum við orðin dösuð og þreytt.
Ákváðum að taka batinn til baka (150kr) og taka sma siestu til að endurnýja orkuna .
Uppá hotelherbergi gátum við ekkert hvílt okkur of spennt að rölta um og skoða, ákváðum þessvegna að dekra aðeins við okkur og skelltum okkur i klukkutíma nudd.
Eftir nuddið stoðum við varla i fæturna við vorum svo slök, rétt svo náðum inna kaffihúsið við hliðiná til að setjast niður og fá okkur frappó.
Nú sitjum við a hótelinu að velta þvi fyrir okkur hvar við ætlum að borða kvöldmat enda klukkan orðin 18:30.
- comments