Profile
Blog
Photos
Videos
2.desember - Lake House
Sofnuðum seint og áttum soldið erfitt með að vakna þennann morguninn eftir aðeins 2,5 klst svefn, tókum bakpokana og allt dótið okkar með niður i morgunmat og biðum svo spennt eftir þvi að verða sótt.
Lek , mjög almennileg kona tók a móti okkur sem var fararstjorinn okkar i ferðinni.
9 manns i þessum hop, 4 danir, 1 finni og 4 íslendingar.
Rutuferðin að bátnum tók alls 6,5 klst á slitnum og oslettum vegi i tælandi, 4 stopp a leiðinni, eitt af þeim hadegismatur a fínum veitingastað þar sem maturinn beið eftir okkur. Hadegismaturinn uppistóð mest af hrísgrjónum ( surprise surprise ;) ) og lauk, með hrisgrjonunum var fullt fullt af lauk, sma grænmeti og eggjum.
Eg er alveg viss um að þetta gæti orðið uppáhalds tælenski rétturinn þinn pabbi (Ívar) hann minnti allavega a þig :)
Þegar við vorum komin husbatnum voru töskurnar bornar fyrir okkur um og fyrsta reglan sem við lærðum var að það eru engir skor a bátnum, svo her ganga bara allir um a tánum.
Eftir að hafa komið dotinu fyrir i kojunni þa vorum við fljót að skella okkur i sund dótið og stökkva úti volgt vatnið .
Busluðum þar þangað til happy hour a barnum byrjaði, splæstum i tvo mojito a heilar 570kr islenskar. Kvöldmatur stuttu eftir það . Hrisgrjon, svinakjöt, rækjur, grænmeti borið i okkur þangað til við sprungum, þa voru diskarnir teknir og komið með eftir réttar diska, sem betur fer var ekki mikið i eftirrétt bara vínber og rose apple, minnti rosa mikið a sambland af peru og epli.
Eftir kvöldmatinn spiluðum við við tvær dönsku stelpurnar, þangað til Að var komið svo svarta myrkur úti að við sáum ekki skil a vatni eða landi, bara fullt fullt af stjörnum.
Þa ákváðum við að koma okkur i hattinn, það gekk upp og ofan, moskitonetið i neðri kojunni hrundi alltaf niður þar sem það vantaði nagla i það svo eftir mikið basl og vesen enduðum við a að sofa bara bæði i efri kojunni þar sem netið var i lagi.
3. Des
Vöknuðum 8 við ekta ameriskan morgunmat, klæddum okkur, moskitovörn, og svo sigldum við i land a litlum bat, vorum að fara Skoða fossinn sem er falinn inni skóginum, var áður rosa mikið heimsottur af ferðamönnum en fyrir 30 árum bjuggu þeir til þetta vatn sem við sigldum a til að búa til rafmagn, svo nú er bara hægt að heimsækja fossinn a bat, við röltum inni skoginn upp að fossinum þar sem við hoppuðum úti og syntum og nutum þess að vera ekki heitt.
Þegar til baka var komið beið handa okkur hadegismatur, spaghetti með kjúklingi og chile sósu . I eftirrétt voru svo mjög fersk melona og ananas.
Eftir matinn byrjaði svo tveggja tima tan session þar sem við sofnuðum meðan við biðum eftir að báturinn sigldi i att að coconut island. A eyjunni sáum við hvernig fjölskyldurnar tvær (sirka 15 manns) höggva niður kokoshnetur og fengum að bragða a einni :) kokoshneturnar þarna eru sérstakar að þvi leyti að vökvinn inní þeim er eins og hlaup, þessar kokoshnetur eru 10 sinnum dýrari en venjulegar kokoshnetur og er þetta eini staðurinn i tælandi þar sem ræktaðar eru svona kokoshnetur, það er bara hægt af þvi þær eru svo langt i burtu fra öllum öðrum kokoshnetutrjam, ef þær blandast saman verða þær að venjulegum kokoshnetum .
Það eru þrjár leiðir við að na kokoshnetum um niður ur trjánum, klifra upp og na i þær, nota rosa langt bambusprik með hníf a endanum til að skera þær niður eða láta apa klifra upp og taka þær niður, ( þau eru með sér taminn apa í það) , a eyjunni eru um 2000 kokospalmatre svo það er nóg að gera hja þeim að rölta a milli og höggva niður kokoshneturnar sem eru tilbúnar en þær vaxa aftur a sirka viku.
Kvöldmatur a husbatnum og spila kvöld a barnum með einn kokteil : Mai Tai ; romm, orange carucau, ananasdjus, lime djus, grenadin.
4. Des
Sigldum um a kayak i öldunum, skoðuðum apaeyjuna i kiki fra husbatnum en sáum þvi miður enga apa, hadegismatur: hrisgrjon og grænmeti borið fram inni eggjapönnuköku.
Eftir matinn settumst við öll i kayak, vorum bundin saman og dregin af long bóta að Skoða fishing village, tók um 15 mín að komast þangað, þa vorum við losuð og fengum að róa um og Skoða hvernig folkið þarna lifir a vatninu, með sjónvarp og þvottavelar, fiskinet og blomabeð. Fljotandi 7/11 búð þar sem hægt var að kaupa helstu nauðsynjar.
A leiðinni til baka fengum við að velja hvort við rúm sjálf eða værum dregin, við lögðum af stað og ákváðum að búa til keppni ur þessu og reyna vinna hana, eins og brjalæðingar rerum við til baka, enda laust að kíkja aftur fyrir okkur til að vera viss um að þetta væri að takast og við "unnum" sveitt og satt skelltum við okkur i sund dót og hoppuðum úti vatnið.
Kvöldmatur, barinn, drykkju leikir, fata af áfengi (300ml romm, 150ml red bull,250ml kók), sofið úti a pallinum i vindinum undir sæng og stjörnuhimni.
5. Des
Vöknuðum endurnyrð og vel ut hvíld eftir góðan svefn á pallinum.
Veiðiferð a kayak þar sem ekkert var veidd nema sma tré.
Eftir hadegismatinn skoðuðum við Secret Temple, Golden Temple og Underwater Temple , lærðum fullt um trú og hefðir tælendinga, margt mjög skrítið og áhugavert.
Eftir þessa lærdómsríku ferð enduðum við a husbatnum aftur að gera heljar stökk út í vatnið :)
Borðuðum kjuklingabringur með og af ljuffengu meðlæti i kvöldmat og nutum þess að horfa a sólar lagið i síðasta skipti af husbatnum, þar sem við vorum svo ánægð með svefninn síðustu nótt Sváfum við aftur úti i ferska loftinu.
6. Des
Vöknuðum við solarupprasina 6:30 og fylgdumst með umhverfinu meðan birti yfir öllu, borðuðum morgunmat, Pökkuðum saman dotinu okkar og biðum eftir að verða sótt a long boat til að fara i elephantriding :)
Það var æði!
Sai, maðurinn sem fylgdi okkar fil, Glaina, var mjög duglegur að fa mynda vélina okkar lanaða til að taka myndir af okkur og var minnst uppá fílnum með okkur svo við fengum að njóta utsynisins alveg a fullu meðan hann ýmist hvatti filinn afram "lii" eða stoppaði hann "haã"
Fengum að prufa að sitja a hálsinum a fílnum, ekki i korfunni a bakinu a honum, eg (Yrsa) fekk að prufa fyrst svo eg lauma mer ur körfunni fram a hálsinn a honum og hann segir mer að fara framar og framar, en úbbosí for aðeins of framarlega og datt af baki, Sai greip mig bara og hlo og hjálpaði mer uppá aftur,
Eftir klukkutíma a filsbaki stoppupum við til að borða hádegismat, i þetta skiptið fengum við heit hrisgrjon i plast poka.
Óðum yfir nokkrar ár og komumst að bambusflekunum sem við notuðum til að sigla niður ána. Að okkar mati hefði matt vera meiri straumur i ánni þar sem þetta var frekar rólegt en við fengum að taka a þvi og ýta okkur alla leiðina niður með löngum bambusprikum.
Aftur a long boat að lengstu trebrú tælands sem er i viðgerð þar sem hún hrundi í september þegar rigndi svo mikið.
Slöppuðum af meðan og röltum um Sangkhlaburi meðan við biðum eftir rútunni sem for með okkur til baka til Bangkok.
Komum til baka a new road guesthouse 22:30 þar sem við gistum i odyrasta herberginu, lítilli kompu sem minnti a fangaklefa, enginn gluggi, ein vifta og íslandi koja. 1,60m x 2,50m þarna Sváfum við fjögur þar sem íslendingarnir sem voru með okkur i ferðinni fengu ekki herbergi.
7. Des
Vöknuðum snemma, drifum okkur uppá flugvöll og sitjum nú og biðum eftir fluginu til Hanoi.
Yrsa&Arnar
- comments
Hróar Frábær lesning. Ef þið haldið áfram að skrifa svona vel og mikið um ferðina þá endar þetta í heilli bók. :-)
Jóa er að fíla að fá alltaf matseðilinn og drykkjar- menu:) er það gert fyrir Pabba þinn og mig Yrsa mín :) þið eruð snillingar annars !!!