Profile
Blog
Photos
Videos
Jæja eins og flestir vita núna fór ég að skoða kóalabirni í gær. Það er semsagt koala sancutary sem er í um 20 mín fjarlægð frá miðri Brisbane. Við vorum tvö sem fórum af hostelinu, ég og þýskur strákur, er mjög fegin að ég var ekki ein því maður þarf eigilega að hafa einhvern með sér í svona til að segja úú og aaa með manni þegar maður sér dýrinn.
Þarna voru nátturulega kóalabirnir og alveg slatti af þeim, ég held að konan hafi sagt að það búa um 100 kóalabirnir í þessum garði og þeir hafa allir sín eigin nöfn. Þarna voru líka dingos, tamsanian devil, kengúrur og undarleg dýr sem ég kann ekki skil á. Kóalabirninir voru mikið sofandi bara en einn og einn voru á vappi og baby kóalabirninir voru æði. Svo fór maður í gegnum stórt hlið og þar voru fullt af kengúrum á vappi um allt, fríkaði mig pínu út....Og svo var risa fugl sem ég veit ekkert hvað heitir sem var að elta fólk...Svo klappaði ég risa snák sem var um 13 kíló það var geðveikt skrýtið að koma við hann, maður er svo viss að þeir séu slímugir en hann var það ekki. Bara svoldið eins og að koma við leður..
Svo tókum ég og þjóverjinn strætó til baka, það var gaman að sjá smá af úthverfi Brisbane. Þegar ég kom til baka á hostelið ætlaði ég að leggja mig og var að ná í drasl úr bakpokanum mínum þegar það skaust kakkalakki undan rúminu, ekki voða stór en samt! Ég fríkaði pínu út! Svo þegar ég ætlaði í sturtu þegar ég vaknaði eftir blundinn voru tveir inn á baði sem var ógeðslegt, ég var að fríka út og fór í sturtu í sandölunum mín og drap einn kakkalakkan og drekkti næstum hinum..oj oj oj. En ætli ég þurfi ekki að venjast þessu í svona landi. Ég ætla samt að fjárfesta í sturtu sandölum!
Núna er ég að reyna að skipuleggja hvað planið er eftir 17. sept. Búin að senda einum hjónum e-mail í sambandi við WWOOFing, vona að ég geti farið til þeirra, þau reka lítið B&B í Cairns sem er frekar norðalega. Svo er ég búin að finna fleiri staði sem mér líst ágættlega á. Vill reyna að komast í wwoofing sem fyrst eftir að ég kem aftur til Brisbane frá Byron Bay.
í kvöld byrjar Brisabane festival, ég ætla að kíkja á það. Margt að gerast t.d. ljósasýning yfir borginni kl 7. Svo þarf ég að vakna á morgun og tékka mig út af hostelinu og ná rútunni til Byron Bay :)
Rúna :)
- comments


