Profile
Blog
Photos
Videos
Jæja þá er komin tími á nýja bloggfærslu er það ekki?
Tók rútuna til Byron Bay á sunnudaginn, ferðinn tók 3 og hálfan klukkutíma og það var mjög gaman að sjá aðeins af sveitinni. Kom til Byron Bay um eftirmiðdaginn og tékkaði mig inn á hostelið. Hostelið er mjög fínt, það er sundlaug hér og stór garður með hengirúmum og ekki nema 3 mín labb niður á strönd.
Byron Bay er rosalega skemmtilegur staður. Hér er rosalega afslappað adrúmsloft og tíminn virðist hreyfast aðeins hægar. Svona skemmtilega samsuðu af fólki hef ég sjaldan séð, það er mjög mikið af gömlum hippum hér og nokkrum ungum, surf lið, karlar í jakkafötum og undarlegum fötum, ferðamenn og annar hver maður er ekki í skóm.
Á mánudaginn fór ég niður á mojo surf kl 13 og ætlaði að byrja surf tímanna. En þá hafði tímsetninginn breyst og tíminn átti að byrja kl 12 en ekki 13, þannig í staðinn er ég líka á laugardaginn í tíma. Allt í góðu með það, ég rölti bara aftur upp á hostel. Fór niður á strönd að reyna að ná mér í smá tan hitti þar fólk sem er með mér á hostelinu og hékk með þeim. Þau voru að drekka Goon, sem er mjög ódýrt kassavín sem allir drekka hér, og buðu mér. Haldið var áfram að drekka fram á kvöld og farið upp á hostel aftur og þar var fullt af fólki að drekka og spjalla og það varð svaka partý á hostelinu, þar sem Goon og orkudrykkjum var blanda í stórra tunnu handa öllum. Svo var farið á skemmtistað hérna í bænum þar sem jelly wrestling var í gangi, sem er eitt af því undarlegasta sem ég hef séð. Ég hélt alltaf að þetta ætti að vera eitthvað voða sexy slagsmál milli tveggja kvenna, nei nei þær voru bara rosa brutal á því.
Á þriðjudaginn byrjaði síðan fyrsta surf kennslan, þetta er ekkert smá erfitt! Ég er blá og marinn út um allt! En þetta er líka rosalega gaman. Fyrsta daginn minn gat ég ekki neitt, annan daginn var rosalega gott veður til að surfa og ég stöð upp og það var æðislegt! En í dag var rosalega hvasst, um 15 metrar á sek. og það er ekkert smá erfitt að reyna að surfa í svoleiðis vindi plús að ég var en svo aum í líkamanum eftir fyrstu tvo daganna. Svo var líka djamm í gær, með grilli og eldsýningu og búningum, þannig ofan á veðrið og verkina var ég líka þunn. Ég er ekkert smá þreytt núna, ekkert djamm í kvöld bara snemma í rúmið!
Ég vill helst ekki fara héðan, þessi bær er yndilegur og það er hægt að fá geðveikt góðan pies hérna með allskonar dóti inn í og allir eru svo vingjarnlegir og afslappaðir....
En ég á miða í rútuna aftur til brisbane á mánudag, ég kem bara aftur hinngað seinna...
Það er víst ekki meira í billi, ég set inn myndir af surfinu á facebook í næstu viku :)
Þanngað til seinna
Rúna surfer chick
- comments



Anna Hljómar æðislega!!! Get ekki beðið eftir að sjá myndir.
Hugrún Næs
Katla Þessi staður hljómar rosalega huggulegur. Gaman að heyra að þú hefur það gott hinum megin á hnettinum! :)
Lovely Le1ttu fee9r batna kona.c9g feekki samt feetta mef0 bf3lurnar og hreystrif0 er ledkust galmali geddu sje1lf feessa dagana.Var einmitt ed baf0hfasinu ed ge6r (fer svona 1x ed viku og feykist vera dugleg) e1 hlaupabrettinu af0 horfa e1 E! sfdna fre1 f3skarnum.c9g jf3k hraf0ann sme1m saman eftir feved sem hver anorexedusjfaklingurinn birtist e1 fe6tur f6f0rum e1 skje1num fear til e9g var ne1nast fokin af brettinu og vif0 feaf0 af0 fe1 hjartae1fall.dee1 ff3r e9g heim og fe9kk me9r Pad thai nfaf0lur feved e9g e1tti feaf0 skilif0.