Profile
Blog
Photos
Videos
Ég er búin að vera vakandi í 23 tíma.....ég get bara ekki sofnað. Allir sem ég hef talað við á hostelinu sem ferðuðust frá evrópu voru viku að jafna sig a jet laginu...so fun times fyrir mig.
Fór að hitta vinn minn sem býr hér í ástralíu í gær og hann var að kenna mér á hinar ýsmu bjórtegundir sem eru til hér, það er rugl hvað eru til margar tegundir og maður getur ekki bara beðið um eitthvað....Það var voða gott að sjá kunnlegt andlit og hann gaf mér allskonar ráð um borgina og lífið í ástralíu. Svo var spilað little talks með of monters and men í græjunum á barnum sem við vorum á og hópur af áströlum söng hástöfum með sem var svoldið gaman að sjá :)
Eins og ég sagði þá hef ég ekkert sofið þannig að ég hékk upp í rúmi í nótt að hlusta á tónlist þar til það var tími til að tékka út af hostelinu, þegar ég fór inn í eldhús að ná í matinn minn var einhver búin að stela upp úr matarpokanum mínum en bara jarðaberjum og osti...sem mér finnst frekar undarleg blanda til að stela...en jæja ekkert hægt að gera í því.
Nú er eg kominn á nýtt hostel en þarf að hanga í tvo tíma þar til ég fæ lykilinn af herbeginu mínu og þá get ég vonandi lagt mig aðeins....
Rúna, þreytta en samt ekki en samt jú...
- comments


