Profile
Blog
Photos
Videos
Dagurinn í dag hefur verið mjög fínn.
Ég sofnaði kl 9 í gærkvöldi vaknaði síðan kl 2 um nóttina, tók róandi og sofnaði aftur vaknaði svo kl hálf 6 og gat ekki sofið þannig að ég fór fram í settustofu og hékk á facebook. Eftir að hafa settið þar í svona 20 mín tók ég eftir að það var gaur sofandi bak við einn sófann...virtist hafa það bara fínt þar. Fékk mér síðan morgunmat varð flökurt og fór aftur að sofa...Vaknaði um hádegi og hafði það bara ágætt þannig að ég ákvað að yfir ána til south brisbane labbaði í vitlausa átt og týnist í smá stund en rataði til baka eftir að hafa labbaði risa hring en það var svo sem bara kósý. Fann Griffith uni bygginguna og ráfaði um south brisbane í 3 klukkutíma, þar voru allskonar markaðir og mannlíf og sól og blíða :)
Var bara að koma aftur á hostelið núna ætla að reyna að sjóða mér smá pasta í kvöldmat, á mjög erfitt með að borða hef verið að borða á svona sirka 8 tíma fresti og þarf voða mikið að neyða ofan í mig matinn en ég held að það hljóti að laggast þegar ég jafna mig betur á jet-laginu.
Annars er svo sem allt rólegt að frétta héðan hef ekki séð neinnar kóngulær eða pöddur nema ávaxtaflugur og undarlega fugla með langann svartann gogg og hljóma svoldið eins og köttur sem er að breima....
Þá er það ekki meira í billi.
Rúna
- comments


