Profile
Blog
Photos
Videos
Ég sit hér á góllfinu á hostelherbeginu mínu með stóran kaffibolla og yndisleg jarðaber að berjast við þreyttuna mína...Má ekki sofna!
í gær tékkaði ég minn á hostelið sem er ágættis hostel minnti smá fyrst á hostelið úr the beach...en þetta er fínt. Í gær og nótt voru tveir strákar frá taiwan með mér í herbegi sem eru farnir núna og einn frakki sem er mjög fínn. Þeir buðu mér upp á vín ásamt fleira fólki upp á þakinu á hostelinu og svo var farið á næturklúbb sem var mjög skrýtið. Þar var rosalega súr lykt en ég gat ekki fundið út hverskonar lykt...Tónlistinn var mjög leiðinleg svona blanda af gömlum remixuðum 90's lögum og einhverri poppfroðu sem ég kannaðist ekkert við og löginn voru bara spiluð í svona mínútu í einu...þannig að ég fór bara út að reykja og spjallaði við nokkra ástrali, ein stelpa vildi endilega að ég fengi númerið hennar fyrst ég væri ein bara svona ef eitthvað kæmi upp á. Allir geðveikt almennilegir hér! Svo fór ég bara heim á hostel, vaknaði kl 8 í morgun og ráfaði um.
Hér er heit og sól en smá kaldur vindur þannig að það er mjög fínt ég er smá brunnin á bringunni....
Og svo eru það jarðaberin!!! Það er jarðaberja season og pakkinn af jarðaberjum kostar 150 kr íslenskar og þau eru svo góð! Fullkomlega þroskuð og enginn ónýtt í boxunum! Mmmmmmmmm.... ég er búin að borða einn pakka í dag og mun pottþétt borða annann á eftir ;)
Ég er komin með ástralskt númer og búin að kaupa rútumiði til Byron Bay og ætla mér bara að slaka á í kvöld, elda mér pasta og reyna að sofna á eðlilegum tíma....
Góðan daginn þið þarna hinumeginn...
Rúnanan
- comments



Pabbi Góð byrjun, gangi þér áfram vel.
Anna Brunnin eftir kuldadag!?!? s***t hvað þú verður tönuð eftir þessa ferð! Ég verð klárlega að fara að stunda ljósabekkina áður en ég hitti þig næst svo við verðum ekki vandræðalegar saman! En gaman að fá fréttir - meira svona:)
Anna Haha, bloggið setti sjálft stjörnur yfir "blótsyrðið"! Það má greinilega ekki rífa kjaft hérna!
Bellamamm fu6ck
Bellamamm bara að prufa þetta með blótsyrðin sko
gG ghj