Profile
Blog
Photos
Videos
6. maí
Morgunmatur kl 6 og að minnsta kosti 8 klst ganga framundan. Gengum fyrst í gegnum gamla Santa Maria bæinn sem áin Urubamba eyðilagði með flóði fyrir nokkrum áratugum. Gangan var mjög falleg , ólýsanlegt útsýni, fullt af dýralífi þar á meðal Capuchin apa sem var heldur betur hrifinn af mér þar sem hann kyssti mig og sleikti á mér ennið alveg fullt. Sáum lítin kríttlegan skeggapa, Frederico páfagauk, risarottu sem var upptekin af banana um sínum, og dýr sem við munum ekki hvað heitir en Arnar var mjög hrifinn af því og lék endalaust við það. Fengum að smakka guinea pig og snákatekíla á leiðinni og var þetta bara nokkuð bragðgott. Upp og niður upp og niður gengum við áfram og þá fann maður hvað það er miklu erfiðara að anda í þessari miklu hæð. Komum svo að "cable car" sem var í raun bara karfa á vír sem var dregin fram og til baka til að ferja fólk yfir ána. Þetta var ég skíthrædd við en þegar við vorum komin yfir var bara stutt ganga eftir að heitum laugum þar sem við fengum að skóla af okkur svita og ryk og slappa aðeins af.
Þaðan fórum við í bæ Santa Teresa og fengum að smakka Alpaca steik sem var bara mjög góð, þaðan í rúmið snemma enda búin á því eftir daginn.
- comments