Cairns, Queensland
Vá það er langt síðan ég hef bloggað...
Það hefur svo sem ekki það mikið gerst á þeim tíma sem liðið hefur frá síðustu bloggfærslu. Ég fór til Noosa með danskri stelpu sem ég kynnist hér. Við komum við í Steve Irwin dýragarðinum. Það var mjög gaman sáum allskonar dýr og krókódílasýningu. Svo kom dóttir hans og söng fullt af lögum um dýr, get ekki logið um að aulahrollurinn hafi ekki gert vart um sig. Svo var fuglasý...


