Profile
Blog
Photos
Videos
Hugleiðingar Kalla - ferðasagan kemur eftir smá frá Elisabeth.
Mun okkar fara fram í íslensku á ferðalaginu? Þegar maður á yndislegt leynimál eins og íslensku keppist maður við að nota séríslensk heiti yfir allt svo enginn skilji hvað maður er að tala um. Allir kannast við að kíkja á húðflúr í útlöndum frekar en tattóin sem maður talar um heima. Þannig er ákveðin gerð málrætkar fólgin í því að ferðast. Líka málsköpun því hvað á t.d. að kalla tuk tuk/rickshaw? Jú, auðvitað gerpi. Ef til vill koma fleiri nýyrði hér fram síðar meir.
Við sitjum ekki bara auðum höndum og skoðum byggingar, mannlíf, menningu og náttúru hér á Indlandi, nei við stundum líka stórskemmtilega landkynningu. Þetta er okkar sjálfboðavinna í ferðinni, við hjálpum litlu landi í vanda að komast á kortið. Mjög algeng setning hér er „where are you from?" og enginn kannast við neitt þegar maður segir satt og rétt frá. Kemur þá að landkynningunni því heimskort er dregið fram og bent á Ísland og núverandi hnattstöðu. Samt spurning hvort maður sendi Inspired by Iceland reikning i lok ferdar ef eitthvad vantar upp a fjarhaginn?
Algengasta spurningin sem við fáum er klárlega „One photo please?" og hefst þá hinn stórskemmtilegi samkvæmisleikur Mynd með hvítu fólki. Besta kenningin um þessa hegðun er að hér sé á ferð leikur ekki ósvipaður planking. En sumum nægir reyndar að fá bara mynd af okkur og eru ekkert að koma sér fyrir með okkur á myndinni heldur smella bara af okkur eins og papparassar. Við fáum amk vel ríflega okkar skammt af 15 mínúta frægðinni. Hversu fyndið væri að taka þennan leik upp á Íslandi?
Nú tekur langan tíma að komast á milli staða (eins og kemur fram í ferðasögunni), stundum þarf að bíða lengi, stundum fær maður illt í magann, stundum er maður þreyttur og þar fram eftir götum. Stundum er allt fullt af rusli en stundum fullt af áreiti (betli, svindli, sölumönnum, skítalykt). Sem sagt nokkuð af óþægindum og leiðindum inn á milli og þau standa stundum yfir í langan tíma. En samt er ótrúlega gaman og við njótum dvalarinnar. Ef ég kynni eitthvað í eðlisfræði myndi ég kannski tengja þetta við afstæði tímans. En þar sem hið andlega er svo áberandi hér í landi er ef til vill nær að segja vísa í þjóðsönginn „einn dagur sem þúsund ár/ og þúsund ár dagur, ei meir".
- comments
Sigríður Lilja Skúladóttir Gott að heyra að það er gaman hjá ykkur, ef þú ert duglegur að setja link á fb þá skoða ég bloggið þitt örugglega alltaf ;) Haldið áfram landkynningunni. Áfram Ísland ! hehe Kveðja frá Íslandi Sigga tkd
Jón Heiðar Gunnarsson Kannast vel við þessa auknu íslensku orðanotkun, LOL :)
Efe je1 hvaf0 er me1lif0 mef0 af0 allt se9 svona rf3legt??? en feetta video mef0 gene kelly er alger snilld og svo fearna mef0 learnkaium er lika flott og.je1 feau eru f6ll mjf6g flott og vel gerf0 nema fearna fyrsta golf auglfdsinginn var svona frekar slf6pp mif0a vif0 hinar auglfdsingarnar ekki mikif0 af tf6lvubrellum eins og ed citroen feaf0 var flott og mef0 les rithem digitales or some en anton bif0ur af0 heylsa ed biliheyrumst e1 morgun 28 apredl