Cuzco, Peru
Góðan daginn þið þarna á klakanum! Það er tólfti dagur ferðalags okkar Kötu í dag og akkurat núna sitjum við í risastórri tveggja hæða rútu á leið frá Puno til Cuzco. Þetta ferðalag á eftir að taka rúmlega 8 tíma svo það er tilvalið að skrifa smávegis um Perú og ferðalagið okkar.
Ferðin okkar byrjaði reyndar fyrir rúmum tólf dögum í Orlando USA. Við flugum þangað kvöldið 6 apríl og vorum þar í 6 stórskemmtilega ...