Profile
Blog
Photos
Videos
Góða kvöldið öllsömul! Við Kata erum hér staddar 3800 m yfir sjávarmáli á litlu hóteli í bænum Puno við Titicaca stöðuvatnið. Þessi bær er miðstöð fyrir eyjaskeggja vatnsins og fólksins í litlu samfélögunum við strendur vatnsins. Fólkið kemur til að selja uppskeru og varning og kaupa nauðsynjar í staðinn. Samkvæmt leiðarvísnum okkar kalla eyjaskeggjarnir Puno "meginlandið". Við erum alltaf að læra eitthvað nýtt hérna og við erum alveg að springa af perúvískum fróðleik og ótrúlegustu hlutum sem við verðum að deila! Við höfum ekki haft tíma til að blogga almennilega þrátt fyrir að hafa ferðast í rúmlega 11 daga núna.
Þrátt fyrir mikil mótmæli frá Kötu verður þetta fyrsta bloggfærslan okkar, ekki í réttri tímaröð heldur segir hún eingöngu frá kvöldi 14 apríls þegar við stigum fyrst á Perúvíska grund. Þótt að Kötu finnist það vera eins og að skrifa dagbók afturábak fáið þið hér með smá lýsingu á upplifun okkar.
Flugið okkar frá Miami til Lima var ágætt, en flugvöllurinn í Lima var algjör martröð. Við lentum um hálftíu leytið að staðartíma og komumst klakklaust út úr tollinum með töskurnar okkar en hinu megin við dyrnar vorum við umsetnar af leigubílstjórum kallandi "Taxi? Taxi??". Þeir voru allir klæddir eins, í hvíta skyrtu og pressaðar buxur. Kata hafði fengið þær leiðbeiningar að leigubíll á hótelið okkar ætti ekki að kosta meira en 6-7 dollara (900 kall) en hver og einn leigubílstjóri bað um minnst 50 solares (2500 kall) fyrir skutl á hótelið okkar. Á meðan við fengum okkur vatnssopa og vorum að reyna að ná áttum (það var mjög mikið af fólki þarna) vorum við stöðugt áreittar af blessuðu bílstjórunum. Þeir gáfust ekki upp og minntu okkur mest á hrægamma. Mér leist ekki nógu vel á að taka einhvern af þessum vafrandi bílstjórum svo ég hringdi á hótelið og bað það um að senda leigubíl til að sækja okkur á flugvöllinn, svona eins og við gerðum í Bandaríkjunum. Maðurinn sem svaraði botnaði ekkert í mér; "taxi from the hotel?!?" og hélt að við værum að tala um að við ættum pantaðann bíl frá ferðafélaginu okkar, G adventures (Kilroy) á meðan ég hélt að hann myndi senda taxa til okkar. Eftir smá bið hringi ég aftur og sami maðurinn tilkynnir mér að leiðarvísirinn okkar kannist ekkert við neitt pick up á flugvellinum í kvöld og hvort ég sé viss að ég hafi pantað slíkt?
Við gáfumst upp. Við fórum út fyrir dyrnar í leit að ódýrari leigubíl. Þar tók við risastórt bílastæði með nokkrum kassóttum byggingum með nokkra hæða háum auglýsingum fyrir hotel, síma og internet í Lima. Umsvifalaust vorum við umsetnar af nýrri hjörð af leigubílstjórum. Einn þeirra sagi okkur að það myndi einungis kosta 25 solares (1250 kr) að taka leigubílinn hans til hótelsins okkar svo við fylgdum honum hálfa leið yfir bílastæðið til bílsins hans. Þegar þangað var komið breyttist verðið skyndilega yfir í 25 dollara (3250 kr) og þegar við neituðum að borga þá upphæð reyndi hann að meina okkur aðgang að töskunum okkar á meðan hann sannfærði okkur um að við fyndum ekkert ódýrara nema að labba þvílíkar vegalengdir. Það fauk í mig og ég hrifsaði töskuna mína til baka. Án þess að við tókum eftir því höfðu þrír aðrir leigubílstjórar elt okkur að leigubíl svindlarans og kórinn byrjaði um leið og við snerum okkur við; "Taxi?? You need taxi?!?" Við ýttum okkur í gegnum mennina og strunsuðum til baka í átt að inngangi flugvallarins. Þá kom ungur maður sem bauð okkur 50 solares til hótelsins og eftir að hafa gert honum mjög skýrt grein fyrir að við borguðum ekki einum sol meira þáðum við boð hans og eltum hann ennþá lengra að hinum enda bílastæðisins og settumst upp í bílinn hans. Klukkan var orðin rúmlega 11 á þessum tímapunkti.
Áður en hann leggur af stað rennir upp að nálægum taxa og biður um leðibeiningar í átt að hótelinu okkar. Við Kata litum hvor á aðra og spenntum beltin. Þegar hann lagði svo af stað komumst við að því að allir keyra eins og brjálæðingar í Lima. Bílar eru stöðugt að reyna að taka fram úr hvor öðrum og oft voru fjórir bílar hlið við hlið að keyra á þremur ákreinum. Fljótlega fórum við að taka eftir því að göturnar litu vægast sagt skuggalega út; annað hvert hús var niðurrifið, eina fólkið á götunum voru hópar af mönnum og rimlar voru fyrir öllum gluggum og dyrum. Seinna um kvöldið viðurkenndum við Kata fyrir hvor annari að atriði úr myndum eins og "Turistas go home" og "Borderland" hefðu sveimað um huga okkar.
Bístjórinn okkar þurfti að spyrja tvisvar aftur til vegar og við fengum fínan bíltúr um Lima að nóttu til. Við sáum Kyrrahafið, dynjandi diskótek, fínu hverfin þar sem allir bílar voru fyrir innan há grindverk og allar stærðir og gerðir af hótelum. Ekki má gleyma yfirgnæfandi raka-, mengunar- og slorlyktinni sem lá yfir allri borginni. Best/verst af öllu var þegar bílstjórinn ætlaði að taka U-beygju og á meðan hann var að bíða eftir að komast fyrir umferðinni á móti komu TVEIR aðrir leigubílar við hliðina á hinum, allir á leiðinni að taka sömu U-beygju! Þettar var kostulegt, þegar bíllinn okkar komst af stað lögðu hinir tveir af stað á sama tíma, þeir mynduðu T á miðjum veginum og stoppuðu aðkomandi umferð, okkar bíll slapp framhjá og lítil vespa kom brunandi úr gagnstæðri átt, tók sveig upp á gangstétt fram hjá kyrrstæðu bílunum og tók fram úr okkur öllum eins og ekkert væri eðlilegra. Eftir klukkutíma taugatrekkjandi bílferð komust við loks á hótelið okkar í Miraflores hverfinu. Við fengum þær upplýsingar að hópurinn sem við vorum að fara að ferðast með legði af stað upp á flugvöll kl 7 næsta morgun. Eða réttara sagt fyrir okkur, seinna þessa nótt.
Þrátt fyrir viðburðarík fyrstu kynni af Perú lofum við að allt var upp á við frá þessum punkti. :)
Kveðja, Kata og Diddú
- comments
Arthur Samme1la feessu af0 vissu marki Wordforge er lofsvert ftamrak sem vill m.a. vernda tungume1l sme6rri samfe9laga. Pootle er umhverfi e1samt verkfe6rum sem gerir mf6nnum kleift af0 halda utan um fefdf0ingarverkefni e1 vefnum. En f6flugt og nfdtedmalegt fefdf0ingarverkefni fearf til vif0bf3tar, verkfe6ri sem heita fefdf0ingarminni translation memory og terminology database sem hafa sambe6rilega virkni og kerfi eins og SDL TRADOS og DEJA VU. Launchpad hefur frumste6tt fefdf0ingarminni, en einfalt og gott notendavif0mf3t. Hins vegar rak mig ed rogastans feegar e9g sf3tti fefdf0ingu ed .po skre1 fre1 Launchpad sem e9g var af0 enda vif0 af0 skila feangaf0 inn. Eftirfarandi var efst ed skjalinu:# Icelandic translation # Copyright (c) (c) 2006 Canonical Ltd, and Rosetta Contributors 2006 ???Af0 setja upp umhverfi (t.d. pootle) sem gefur af0gang af0 OSS kerfi sem bfdr til fefdf0ingarminni t.d. OmegaT, ve6ri gott framlag.