Profile
Blog
Photos
Videos
Sælt veri fólkið,
Eftir margra daga undirbúning milli jólaboða og stresskasta er loksins komið að þessu. Við erum á leið í þessa lönguplönuðu ferð. VIð kvöddum allt fólkið okkar á Keflavíkurflugvellli og eftir langa kveðjustund fórum við af stað. Við þurftum að drífa okkur í gegnum flugstöðina og misstum við næstum af fluginu á fyrsta áfangastaðinn okkar, Danmörku. Flugið var ekki nógu gott en var þó frábært uppi í 35000 fetum þegar Guðmundur Karl leiðbeindi henni lystilega. Sæunn tók á móti okkur og keyrði okkur á Strikið. Þar blasti við okkur fyrsta rigningin í Kaupmannahöfn á þessu ári og af því tilefni þurfti Lovísa auðvitað að missa nýja símann sinn ofan í poll. Milli þess að hlaupa milli kaffihúsa og fatabúða fórum við í a.m.k. 10 símabúðir til að fá hjálp við að þurrka og laga símann. HIns vegar lærði Pétur nýtt orð sem var mikið notað svo að það var lán í óláni. Við náðum í síðustu búðina rétt fyrir lokun og á meðan við biðum eftir þjónustu komst síminn í lag svo að við litum út eins og apar þarna. Nú erum við komin heim til Sæunnar og hún sér rosa vel um okkur. Svo þurfum við að ná flugi til Dubai eldsnemma í fyrramálið kl 14. Við hlökkum mikið til að sjá arabíska fursta og skýjakljúfa. Við erum ekki alveg búin að læra á síðuna en það er hægt að skoða myndir á flickr síðunni okkar, flickr.com/ferdalong en við ættum að geta kippt því í lag bráðum.
- comments