Dubai, United Arab Emirates
Í miðju flugi til Dubai uppgötvaði Pétur að hann var með vasahníf í handfarangri sem hafði sloppið í gegnum hliðin á Íslandi og í Danmörku. Hann var mjög stressaður við lendingu enda Arabar þessir mjög strangir á öllu. Við sluppum þó í gegn og það fyrsta sem hann gerði var að setja hann í aðra tösku. Daginn eftir notuðum við til að rölta aðeins um hverfið en seinna um daginn fórum við í eyðimerkursafarí. Þá vorum vi...