Profile
Blog
Photos
Videos
Í miðju flugi til Dubai uppgötvaði Pétur að hann var með vasahníf í handfarangri sem hafði sloppið í gegnum hliðin á Íslandi og í Danmörku. Hann var mjög stressaður við lendingu enda Arabar þessir mjög strangir á öllu. Við sluppum þó í gegn og það fyrsta sem hann gerði var að setja hann í aðra tösku. Daginn eftir notuðum við til að rölta aðeins um hverfið en seinna um daginn fórum við í eyðimerkursafarí. Þá vorum við sótt á hótelið á Land Cruiser og farið með okkur út í eyðimörk. Þar keyrðum við um og yfir sandhóla á glæfralegan hátt (annars væri það ekkert gaman) og var oft eins og bíllinn væri við það að velta. Við horfðum á fallegt eyðimerkursólarlagið og fórum svo á arabíska sýningu þar sem allir hinir þúsund túristarnir hittust. Við fengum mat og drykk og sátum á sandpokum á jörðinni að horfa á nokkra dansa.Stelpurnar fengu skrýtið henna tattú, við fórum á bak á kameldýri og héldum á fálka og fleira. Það var líka kalt á íslenskum mælikvarða, annað en þær "ísköldu" 20 gráður sem voru um daginn. Næsta dag vöknuðum við snemma til að ná city tour um borgina sem var beisiklí sami gaur að keyra okkur um Dubai til að taka myndir af kúl byggingum (en sleppti þó Burj Khalifa). Efit túrinn fórum við í vatnsrennibrautagarð og fengum sýnishorn af surfi. Eftir þetta fengum við okkur (væntanlega) McDonalds, horfðum á ríka Araba veðja á hesta hlaupa og síðan í átt að Burj Khalifa, hæstu byggingu í heimi. Þar horfðum við á tvær gosbrunnasýningar og fórum í Dubai mall þar sem var 70% afsláttur í H&M og sáum mjög stórt fiskabúr þar fyrir utan. Fórum svo á hótelið að ná í töskurnar og drifum okkur á flugvöllinn til að fara til Maldív eyja.
- comments