Profile
Blog
Photos
Videos
Núna sitjum við uppá þaki á hótelinu okkar í Thailandi, drekkum bjór og spilum spil. Það hefur mjög margt drifið á daga okkar þessa fyrstu daga í ferðalaginu okkar!
Heimsreisan hófst í Danmorku með tilheyrandi rigningu og roki. Við gistum á skemmtilegu hosteli, CPH Downtown Hostel, sem er rétt hjá strikinu og það fyrsta sem við gerðum var að fara á McDonalds! Við hittum Kidda vin okkar sem býr þarna í Koben og fórum á létt pobbarolt. Við vorum þó ekki lengi því daginn eftir var ferðinni heitið til Dubai.
Dubai er engu öööööðru (vá fundum loksins ö-ið á lyklaborðinu!) líkt. Skýjakljúfrar fengu aðra merkingu í okkar augum, glæsikerrur, furstar, konur í búrkum og ríkidæmi einkenndu þessa mögnuðu borg. Hótelsvítan okkar sló í gegn: 2 baðherbergi, eldhús, stofa, risastórt herbergi, 2 flatskjáir og rúmið var svo stórt að við stelpunar sváfum allar 3 saman uppí en samt með nóg pláss! Á laugardeginum byrjuðum við daginn á að skoða Burj Khalifa, hæsta turn í heimi og kíktum inn í stærstu verslunarmiðstöð í heimi rétt hjá sem innihélt stærsta fiskabúr sem við höfum á ævinni séð með hákörlum og tilheyrandi. Í öllum æsingnum yfir fiskabúrinu gleymdum við okkur aðeins og misstum næstum því af land cruisernum sem brunaði með okkkur í eyðimerkursafari ferðina.
Bísltjórinn okkar heitir Ali og reyndist okkur mjög vel alla dvölina okkar í Dubai. Það var geðveikt að "surfa" um sandöldurnar á bílnum, öskrandi eins og litlar smástelpur því það munaði hársbreidd frá því að bíllinn ylti á hliðina í annarri hverri beygju. Við enduðum safari ferðina í einskonar búðum þar sem við fórum á bak á kameldýri, mátuðum búrkur og kirtla, fengum henna tattoo og smökkuðum mjög vafasaman arabískan mat (en sem betur fer fékk enginn í magann).
Ali var svo yndislegur að bjóðast til að vera einkabílstjórinn okkar daginn eftir og keyra okkur til Abu Dhabi í Ferrari World. Þar fórum við í hraðskreiðasta rússíbana í heimi en hann fer á 240 km hraða!! Hann fór svo hratt að við þurfum að vera með hlífðargleraugu! Við eyddum bróðurparti dags þar og svo keyrði Ali okkur að sækja töskurnar okkar og þaðan í Mall of Emirates en það er svo stórt að það innheldur heila skíðabrekku! Þar drápum við tímann því flugið okkar til Bangkok var ekki fyrr en kl 3 um nóttina.
Lentum í Bangkok á hádegi og fórum þaðan beinustu leið á hótelið. Getum ekki sagt að hótelið hafi heillað okkur...það er nokkuð ljóst að við treystum ekki myndum sem hótel birta á síðum sínum. Myndirnar ýktu vægast sagt gæði hótelsins. Langþráða laugin sem var ástæða bókunar okkar á hótelinu var á stærð við vaskafat, flugumferð, lestarteinar og hávaði frá hraðbraut gerði okkur lífið leitt og hótelgarðurinn var á bílaplaninu. Helsta ástæðan fyrir því að við ákváðum að fara var að við vorum einangruð frá öllu sem hægt er að kalla menningu og eina sem við gátum borðað var á veitingastað hótelsins og þar var alls ekki margt í boði. Við ákváðum að fara til borgar við ströndina Pattaya sem Ali vinur okkar benti okkur á.
Hér erum við búin að vera í einn dag og þetta er allt annað líf! Eyddum deginum á hótelþakinu þar sem sundlaugin er ;) Röltum seinnipartinn niður að ströndinni, horfðum á sólarlagið og litum aðeins í kringum okkur. Hérna ætlum við að vera í allavegana 6 nætur því 24. janúar hefst nýtt ævintýri þegar við höldum af stað í Lake house!
Settum inn nokkrar myndir sem tengjast blogginu í albúmið "Fyrsta bloggið!". Endilega kíkið :)
- comments
Auður Guðmundsdóttir Mjög gaman að heyra hvað hefur á daga ykkar drifið! Hlakka til að heyra meira. Ást í poka <3
Ingibjörg Valgeirsdóttir Stórkostlegt!! Vá hvað það er gman að lesa þetta og sjá hvað þið eruð búin að upplifa mikið á aðeins örfáum dögum...þetta er magnað! Alveg eins og þið <3 Hlakka til að heyra meira...njótið gull <3
Kristín B Magnúsdóttir Æðislegt að lesa bloggið ykkar. Hlakka til að heyra meira.
Berglind stóra systir Maríu en samt er hún stærri Frábært. Landcruiser er staðalbúnaður í Dubai, eins konar þjóðarbíll segja þeir sem þekkja til :) Hlakka til að fylgjast áfram með ykkur.
Mamma Pía Þetta var skemmtileg lesning..! .Það er ágætlega ritfær einstaklingur sem þetta ritar :D Takk hjartanlega elsku bangsarnir..Njótið Pattaya <3
Hrefna Flottur pistill og lofar góðu um áframhaldandi bloggfærslur. Greinilegt að það er margt að upplifa og skoða. ég hefði aldrei farið í rússibanann en hefði örugglega spilað majuna. Knús á ykkur frá ömmunni.
Nína Veiiiii en gaman að lesa frá ykkur :D Þið eruð snilld og ég sakna ykkar!!
María Skemmtileg frásögn og gaman að lesa
Anna frænka Aldísar Spennandi að fylgjast með ykkur:-) smá ráðlegging til ykkar.. Þið getið treyst bílstjórum sem leyfa ykkur að taka af sér myndir. Hinir eru skúrkar