Profile
Blog
Photos
Videos
9.des
Pakka, morgunmatur, 4 klukkustundir i rútu, batur uta Halong Bay. Stoppuðum i husbatnum þar sem við borðuðum hrisgrjon, djupsteikt svinakjöt, heill fiskur og gurkusalat.
Eftir matin fórum við og skoðuðum stærsta hellinn þar voru u.þ.b. 800 tröppur upp og niður. Eftir hellaskoðunina fórum við a aðra eyju og tókum rúmlega tvöfaldan himnastiga upp að Skoða útsýnið yfir allt. Kayak túr þar sem hápunkturinn var að sja fullt af öpum a einni eyjunni. Þegar við vorum að fara ur kajaknum við höfnina voru indverjar a undan okkur sem voru að reyna komast ur kajaknum sen endaði með þvi að þeir veltu og enduðu báðir úti sjónum. Allir hlogu rosa mikið og þeir lika meðan reynt var að veiða flip flops uppúr sjónum.
Töfum, lauksalat, rækjur og dragon fruit i eftirrétt. Það var boðið uppá að veiða eftir matinn svo við ákváðum að prufa, fórum ut fyrir og hann rétti okkur bambusprikum með girni og öngli, pinulitlir fiskar og veiddum ekki neitt.
Sátum uppi a þaki a bátnum og spjölluðum við folkið með okkur a bátnum i tæpa þrjá klukkutíma um ferðalög og lífið.
10. Des
Morgunmatur pakkað saman og siglt að CatBa Island, þar fórum við i fjallgöngu i þjóð garðinum þar sem a toppnum mátti sja yfir allt. Alvörufjallganga mikil líkamsrækt og algjört æði. Sáum litinn grænan snák a leiðinni til baka að rútunni sem keyrði okkur inn i bæ a hótelið þar sem við fengum hádegismat áður en við fórum a 1,5 klst siglingu að Skoða fleiri eyjar og fishing village.
Eftir kvöldmatinn dekruðum við svo við okkur með klukkutíma nuddi.
Liggjum nuna i afslöppun uppá hóteli eftir kraftmikið nudd þar sem a tímabili voru það eins og barsmíðar þar sem þær trommuðu svo mikið a okkur.
Vonum að við vöknuð endurnærð og tilbúin að fara ur rólegheitunum her aftur til baka i Hanoi i lætin og brjaluðu umferðina.
Yrsa &Arnar
- comments