Profile
Blog
Photos
Videos
8. April
Allir mættir niður með bakpokana og við röltum af stað í steikjandi hita að rútustöðinni, enginn lúxusmeðferð bara venjulegur chicken bus með öllu fólkinu.
Tíma áætlunin stóðst ekki hjá þeim svo við lögðum ekki af st fyrr en hálftíu í þessa 2 tíma rútuferð.
Þegar við komum að stoppinu tókum við annan minni chicken bus að ferju stoppinu sem tók tæpan klukkutíma og ferjan svo 1,5 klst. En að lokum vorum við komin til Ometepe. Fyrsta sem við gerðum var að fara að Ojo de Agua og baða okkur í vatninu þar og borða.
Eftir að hafa eytt tíma þar vorum við komin í þorpið opnar La Paloma kl 18:00 tilbúin að hitta fjölskyldurnar sem ætluðu að taka okkur að ser næstu tvo daga. Við fengum lúxusmáltíð, kjúkling og grænmeti með hrísgrjónum og platano, ferskan mangódjús og afmælisköku í eftirrétt.
Slógum svo köttinn úr tunnunni ( afmælis hefð hér) og borðuðum nammi og lékum okkur saman fram á kvöld.
Uppí rúm undir moskítónet að drepa allt sem hafði komist innfyrir ( maurar, moskító, allskonarflugur) áður en ég sofnaði.
Hjá Arnari voru engar pöddur en hann þurfti að labba í myrkrinu ás tröndinni heim í sitt hús.
9. April
Borðuðum steikt egg með lauk og kryddi, hrísgrjón og baunirnar og brauð i morgunmat. Ljúffengt allt saman borið fram með límonaði.
Hittumst svo krakkarnir í centro communial þar sem við tókum leigubíl á safn þarna í grenndinni þar sem við fengum að Skoða allskonar muni úr leir, elsti hluturinn 5000 ára. Þaðan fórum við í Charco verde, skoðuðum náttúruna, vatnið á eyjunni í vatninu, sáum öskurapa (howler monkey) lékum okkur í sjónum, borðuðum á veitingastaðnum spiluðum spil og borðtennis. Fórum svo til baka og lágum í hengirúm ungum og slöppuðum af þangað til við borðuðum kvöldmat með fjölskyldunum. Fengum að hjálpa til við að búa til Torta Maduro stappaðir platano með osti inní steiktir, svo fengum við niðursneidda platano steikta og einhverskonar stöppu Guisado de Achote, þetta var svona matur sem þau borða bara hversdags.
Eftir spjall þá fórum við út og hittum krakkana og ræddum hvernig kvöldmaturinn hefði verið mismunandi. Arnar fékk kartöflur, hrísgrjón og baunir í ostasósu og hann fékk hrós fyrir spænskuna sína og ekkert smá stoltur af því.
Yrsa & Arnar
- comments