Profile
Blog
Photos
Videos
11. maí.
Morgunmatur á hótelinu og svo út að rölta með Tim og Marie að finna göngutúr inn um borgina
Á torginu tók á móti okkur skólahús og hár laus maður sem benti okkur að koma með ser að koma þar sem göngutúr inn byrjaði, við vorum frekar efins en þr sem við vorum fjögur gengum við a eftir honum. A endanum sagðist hann ekki vera guidinn okkar en hann væri að aðstoða túrista við að finna guidinn fyrir sma klink fyrir kaffi.
Byrjuðum túrinn fyrir utan san Pedro fangelsið sem er einstakt á þann veg að þar inni eru engir klefar eða fangaverðir heldur ákveða fangarnir reglurnar sjálfir og þar inni borgari leigu. 50-5000 bolivia os (1=17 isk).
Fyrir nokkrum árum var möguleiki fyrir túrista að fara þarna inn að fá sér kaffi með göngunum og rölta um en komst yfirvöldin fljótt að því að það var ekki það eina sem túristarnir voru að gera, þar sem þetta er ódyrasti staðurinn í bólivíu til ad næla sér í kókaín, þar sem þeir framleiða inni í fangelsinu.
Gengum í gegnum markaðinn þar sem við gengum fram hjá hótelinu og ég lét þetta duga þar sem maginn á mér var ekki alveg orðinn góður.
Arnar gekk áfram með tim og þar fóru þeir a nornamarkaðinn þar sem hægt er að kaupa allt mil himins og jarðar sem tengist göldrum. Ástarmeðal - þurrkað baby llama, notað fyrir heppni þegar verið er að fara byggja hús. En fyrir stór hús þarf að grafa lifandi manneskjur undir, yfirleitt rónar af götunni sem enginn mundi sakna.
Á forseta torginu lærðum við um heimsmet sem Bólivía á fyrir flesta forseta á stuttum tíma, 100 forsetar á 200 árum, þar sem ef fólkinu líkar ekki við forsetann er hann einfaldlega drepinn.
Um kvöldið fór Arnar með tim og marie á Gholitas glímu, fínasta skemmtun en soldið lang dregið. Gholitas eru konur sem klæðast þjóðbúningi sem kstar 5000-10000 dollara sem er ástæðan fyrir því að þetta er að deyja út þar sem þetta er dýrt.
12. maí
Fórum með Marie og Tim á Madidi ferðaskrifstofuna þar sem þau bókuðu amazon ferð og þaðan í immigration til að geta verið lengur i Bólivíu, nóg um stimpil uppá 60 dága gekk ágætlega, en nokkrar ferðir að hlaupa í næstu götu til að ljósrita vegabréf, stimpil, græna blaðið og dúllerí.
Eftir það fórum við á Olivers að borða enskum mat og spila pool. Fórum svo tvö á markaðinn að Skoða og versla þar sem við rákumst svo á íslenska stelpu sem hafði ekki talað íslensku neitt sitt þriggja mánaða ferðalag. Gengum áfram og farið uppá hotel svo við myndum ekki versla Meira. Borðuðum a mexíkóskum stað í kvöldmatinn sem var mjög góður.
13. maí
Kvöddum Marie og Tim þar sem þau voru að fara í 20 tíma rútu inni amazon og við röltum Meira um bæinn og borðuðum a indverska staðnum i hádegismat.
Gengið um bæinn, verslað sma mat i supermarkaði um og uppá hotel að pakka.
- comments