Profile
Blog
Photos
Videos
Nyhá! Erum ordnar svo reiprennandi i kinverskunni, tad er varla edlilegt.
Vid eyddum 3 godum dogum i Shanghai. Shanghai er skemmtileg borg og margt ad sja. Folk labbandi um straetin i nattfotunum og fot hengd til þerris vid umferdaljosin. A fyrsta deginum okkar i borginni forum vid ad skoda Shanghai safnid. Tar var haegt ad sja fot , teikningar, husgogn og fleira fra tvi i gamla daga og hvernig tau voru mismunandi eftir tjodarhopum. Um kvoldid forum vid svo a ljosasyningu tar sem batar sigldu framhja, allir upptendradir. Romantiskt, svo romantiskur stadur ad vid urdum meira segja vitni ad giftingarmyndatoku, eda svona ,,fyrir giftingu" myndatoku sem tiðkast i Kina. Naesta dag forum vid ad skoda utsynid yfir Shanghai en tad eru svo haar byggingar tarna ad madur tarf ad fara upp a haed 100 til ad sja tetta almennilega. Turninn sem vid forum i , sem er svona utsynisturn, var svakalega, gasalega kúl. Tetta var sma svona eins og fara til framtidarinnar. Lyftan var stor og hvit og for 8 m/sek eda 28,8 km/klst. Vinnufolkid var lika klaett i skemmtilega formlega buninga. Eins og vid værum að fara ut i geim.
Tad sem vid gerdum lika i Shanghai og stod uppur var ad sja Acrobatic show! Rosa toff syning og endaatrididi hét ball of death, uffff. Tetta var stor kula tar sem 5 menn foru inn í a motorhjolum og keyrdum svo i hringi inni kulunni og sikk sakk. Bahh tad var rosalegt.
Seinasta daginn okkar i Shanghai hittum vid og joe fra Irlandi skemmtilegan mann a gotum úti. Hann vissi heilan helling um Island og hafði lesið bók um landid þegar hann var lítill. Hann talaði líka 4 tungumál og ensku mjog vel sem er aaaafar sjaldgaeft her i Kina. Afar sjaldgaeft. Vid vorum fyrstu Íslendingarnir sem hann hafði hitt (stoltar) og hann bað okkur um að senda mynd af okkur med honum ekki í maili heldur posti fra Islandi. :) Þennan dag var veðrir frekar gott og Sigga var í stuttbuxum. En þar sem það er haust i Kina var bokstaflega enginn annar i stuttbuxur og allir störði á hana eins og vitleysing. Gómuðum meira að segja einn mann taka mynd ad löppunum. Jahernahér
Við tókum naeturlest til seinasta afangastaðs okkar i Kina, Peking. Þegar vid komum til Peking þá var sko fyrst orðið kalt, svona Islendinga haust kalt. Mjög fyndið að sja kuldasvipinn á öllum þegar við löbbuðum útúr lestinni um hádegisbil. Í Peking skoðuðum við Forbidden city, markaði, Temple of heaven, ólympíusvaedid og sidast en ekki síst Kínamúrinn. Við vöknuðum alveg eldsnemma eða 6:30 og ferðuðumst í tvo tíma að múrnum. Kínamúrinn er svaka stór og mikill. Hann er rúmlega 6000 km langur og var að mestu leyti byggður á 10 árum. Við fengum frábært veður, heiðbláannhiminn. Á leiðinni til baka ákváðum við svo að renna okkur niður með rennibraut , Beyonce stael, og það var svaka stuð.
Við kvoddum hópinn okkar fyrir nokkrum dögum eftir 18 daga samveru. Það var mjög leiðinlegt að kveðja hann, svo ótrúlega frábaer hópur! Það verður erfitt fyrir næsta hóp að toppa :) Við erum núna að reyna að minnka niður væntingar okkar, sérstaklega þar sem hópurinn inniheldur aðeins 7 manns. Við vorum 3 daga einar í Peking og var það mjög áhugavert. Við villtumst! Þegar við vorum á vappi stoppaði okkur mjög hress kínverskur maður og spurði okkur hvaðan við værum. Hann vissi alveg gommu um klakann okkar, þekkti Reykjavík, Geysir og Bláa lónið. Hann sagði okkur að hann væri myndlistarkennari og vildi endilega sýna okkur sýninguna sína og vinnustofuna. Við röltum því með honum og voru myndirnar hans mjög flottar. Hann skrifaði svo niður fyrir okkur á calligraphy nöfnin okkar og tákn. Hann skrifaði einnig niður fyrir okkur götuna sem við ætluðum upprunalega að fara á. Við kvöddum þennan kínverska Picasso eins og hann kaus að vera kallaður og héldum á markaðinn og í uppáhalds búðina okkar. Það gekk svo heldur brösulega að komast heim! Allamalla, við biðum í tvo tíma eftir leigubíl, eenginn vildi stoppa og það voru fullt af svona "leigubílum" sem vildu endilega keyra okkur hvert sem er, samt ekki strákum, þeir voru á bannlista. Loks þegar við leigubílarnir fóru að hrannast upp þá vildi bara ekki einn einasti leigubill taka okkur upp á hótelið, hristu bara hausinn og þóttust ekki vita neitt i sinn haus. Spurðum alveg 10 taxa þangað til einn var svo góður að taka okkur uppá hótel, een hann vissi heldur ekkert hvar það var, samt ekki eins og þetta hótel hafi verið langt í burtu. Hann þurfti að spyrja til vegar alveg 5 sinnum, var alveg þvílíkt næs. Hringdi meira að segja uppá hótel, það hjálpaði nú samt ekki. Okkur tókst samt að lokum að komast uppá hótel, sjúkket. Þegar við komum þangað var búið að loka og laesa því en við vorum með útgöngubann á þessu hóteli. Það reddaðist þó. :)
Eftir 6 skemmtilega og skrautega daga í Peking héldum við til Víetnam þar sem við erum núna. Við þurftum að taka strætó og lest upp á flugvöll. Flugum fyrst til Seoul og því flugi var seinkað um 2 klukkutíma vegna þoku og við misstum því næstum af fluginu til Hanoi, oh boy! Við rétt náðum þvi þó þökk sé spretthæfileikum okkar :)
Kína var frábært land og aðeins vestrænnara en við bjuggumst við. Mc Donalds og Starbucks á hverju götuhorni.
Það var samt ýmislegt sem kom okkur á óvart og hér koma nokkrir punktar.
Nr.1- Allt sem þú gerir og segir í símanum þínum er hlerað(ok kom okkur kannski ekkert á óvart, een samt skrítið) Ein af sænsku stelpunum lenti einmitt í þessu, hún sagði í sms-i F orðið og svo var hún líka að tala um það hvað lestarnar væru lélegar, það féll ekki í svo góðan jarðveg hjá kínverskum stjórnvöldum og fékk hún sms um það að hún myndi ekki geta notað símann sinn meira í Kína.
Nr.2 - Húsin eru ekki hituð fyrr en i nóvember í allri Peking, þ.e.a.s að hitanum er ekki hleypt á fyrr en í nóv.
Nr. 3 - Í Kína nota lítil börn ekki bleyjur, heldur eru þau bara með gat á buxunum. Það er samt alveg skiljanlegt þar sem þetta er miiklu umhverfisvænna, væri samt alveg líka hægt að nota taubleyjur.
Nr. 4 - Það eru öryggisskannar aalstaðar, alveg ótrúlegt
Nr. 5 - Hlutverk lögreglunnar hér er mjöög skrítið. Þær eru allstaðar, lögreglubílar eru alltaf með ljósin á og á hverju götuhorni. Lentum meira að segja í því að það var lögreglubíll að lulla framhjá með ljósin á og í aftursætinu sat lögreglumaður og var að taka myndir.
Kína var alveg frábær upplifun og við áttum þvílíkt skemmtilegan tíma þar, það var samt gott að halda til Víetnam, 3 vikur var alveg fullkominn tími í Kína.
- comments
Bjarki Hvað er í gangi bara engin búin að kommenta :) Þetta með hitann tíðkast held á mest öllum stöðum í heiminum nema á Íslandi :) Alla vega í usa og víðar :) Skemmtið ykkur vel. Kv, Bjarki.