Ban Om Kon, Thailand
Sabædí!
Við hittum seinni ferðahópinn okkar í Hanoi, Víetnam 6 nóvember 2011. Okkur leist ekkert á blikuna þegar við settumst við borðið með aðeins tveimur öðrum (miðað við 13 í Kína). En það var bara plat. Restin af hópnum hafði verið að ferðast saman um Kambódíu og Víetnam og við hoppuðum inní á seinustu stoppistöðinni. Hér erum við líka með tvo hressa Kanada búa, hvað er með þessa Kanadamenn! Alltaf svo hressir o...