Profile
Blog
Photos
Videos
Ferðin er hafin! að trúa þessu, það er eins og við hefðum ákveðið þetta í gær. Tíminn er fljótur að líða. Við lentum í Köben í fyrradag með aðeins þrjú markmið:
nr 1) Fara á Mc Donalds.
nr 2) Redda okkur Visa til Víetnam
nr 3) Redda okkur gistingu í Köben
Markmið eitt var fljótafgreitt eins og við mátti búast, enda frítt net og besti mcflurryinn. Markmið tvö var aaaaææj þurftum að hafa aðeins meira fyrir því kannski og ég held að aðalsetningin hafi verið : ,,eigum við ekki bara að spyrja að þessu ?" En við löbbuðum ábyggilega í svona tvo tíma í staðinn fyrir korter og fengum að kynnast almennilegri rigningu. Unu finnst tímaskyn dana eitthvað brenglað en kannski hefur hún bara ekkert tímaskyn eða mjög skert allavega :) heeeeeeeeehe
Markmið 3 gekk eiginlega best þótt ótrúlegt megi virðast. Við vorum allavega komnar með gistingu á leiðinni upp á völl (afrek). Vinkona Birgis og Daníels var svo ótrúlega næs að leyfa okkur að gista og eiginlega lánaði okkur íbúðina, gaf okkur frían mat og fengum meira að segja að nota handklæðin hennar! Hún er algjört æði.
Við vorum ekki lengi í Danmörku en náðum samt að taka margar lestir, kannski aðeins fleiri en við þurftum eða allavega ætluðum við aldrei upp í sveit. Gengum Strikið á enda í miklu votviðri og kynntumst villtu líferni íbúa Kristjaníu.
Síðan ákváðum við að skella okkur til Svíþjóðar að heimsækja Albert og Evu frændfólk Unu. Þau tóku á móti okkur eins og konungsbornum prinsessum. Fengum dýrindis kvöldmat og leiðsögn um skóglendi Svíþjóðar. Kíktum til Lund og rákumst á Dómkirkjuna sem er jú byggð 1145 (fróðleikur dagsins)
Nú sitjum við hér og búum okkur undir stóra stökkið en það er Kína í nótt, eða allavega leiðin þangað þar sem við verðum ekki komnar þangað fyrr en 9unda á chineese tíma.
Hej då
- comments
Beggi ánægður með bloggið,komið með fullt af færslum ! en annars bara gangi ykkur vel og heyri vonandi í ykkur fljótlega :D
Mamma Jónína Gangi ykkur vel svía krónprinsessur...........;) knús og kram!!
Eva Björg Snilli!! Ánægð með þig, skemmtu þér vel og vertu dugleg að blogga. Ég mun fylgjast spennt með :D
Hanna Sigrún Líst vel á þetta :) Góða skeeeemmmtun!
Árni Magnússon Afar skemmtileg lesning. Góða skemmtun
Heiðrún, hojo, heidí, heiðrúnbeilrún..... gaman að skoða bloggið elsku þið! þið eruð bestar! gangi ykkur vel og munið að taka myndir! því ég nefnilega tel niður dagana í myndakvöldið mikla!! já það verður heljarinnar viðburður! knús á ykkur sætu þið ;**
Helgi Ég elska fróðleiksmola dagsins! 1145?? Það er alveg sama ár og Eugene II er kosinn páfi, María frá Antioch fæðist og Kim Pusik og félagar klára kóreiska sagnfræðiritið Samguk Sagi. Góða skemmtun í Kína og skilið kveðju til Hu Jintao!
Þorbjörg Ósk hahaha Helgi! Skemmtilegt blogg stelpur :D Ég verð fastagestur hér, er svo spennt að vita af ævintýrum ykkar! Góða ferð til Kína
Jónína gangi þér vel elsku Una og njóttu ævintýrisins með ferðafélaga þínum - hlakka til að fylgjast með - kv. Jónína M.
panda tullejente
Daníel næsness.