Profile
Blog
Photos
Videos
New York, New York. Við héldum að við myndum aldrei komast á leiðarenda. Í gær, 7. nóvember, áttum við flug frá Keflavík til New York og áttum við að lenda um kl. 18 að staðartíma (kl. 23 að íslenskum tíma). Allt gekk vel í fluginu þangað til flugvélin átti að fara lækka. Þá tókum við eftir því á skjánum í sætinu fyrir framan okkur að við vorum að hringsóla yfir New York og vorum búin að fara 4 hringi fyrir ofan JFK. Loksins tilkynnir flugstjórinn okkur að það sé mikill snjór á flugvellinum og flugvélin þurfi að bíða eftir snjómokstri. Síðan leggur flugstjórinn í lendingu en hættir við aðeins nokkrum tugum metra frá jörðu þar sem skyggni var ekkert, hríðarbylur á flugvellinum og e-r lendingarbúnaðar á flugvellinum í ólagi. Nú segir flugstjórinn að við séum á leiðinni til Washington D.C. og ætlar síðan að tilkynna okkur hvað verði gert næst þegar við erum lent.
Við lendum í Washington og þá tilkynnir flugstjórinn okkur að við ætlum að reyna aftur að lenda á JFK. Blendnar tilfinningar komu upp en óbilandi trú á áhöfninni gerði það að verkum að maður reyndi að slaka á og horfa á eitt stk. Simpson á meðan. Að lokum lentum við í New York, í hrikalegum snjóbyl og flugstjórinn sagði að nánast öllum öðrum flugum hafði verið aflýst. Klukkan var þá að vera 22 að staðartíma eða 3 um nótt að íslenskum tíma.
Boðskapur dagsins, íslenskir flugmenn eru líklega þeir bestu og huguðust í heimi og við erum mjög þakklát fyrir það að hafa komist heil á höldnu á áfangastað :)
Nú höldum við út í daginn og stefnan er sett á Manhattan.
Hjónin kveðja í bili.
- comments
Halla Jónsdóttir Heima var mamma Halla á bænavaktinni. Eigið góða daga.
Hanna Guðný Gott að heyra að allt fór vel! :) Vona að þið eigið frábæra daga framundan. :)
Jóhanna María Vóv það er ekkert smá. Öfunda ykkur ekki að hafa lent í þessu, gott að vera með íslenska "snjóreynda" flugmenn. Hafið það gott og góða skemmtun.
Lára Halla Sigurðardóttir Gaman að byrja þessa reisu með smá ævintýri. :) Góða skemmtun! E.s þið eigið póst fá mér!