Profile
Blog
Photos
Videos
Hildur og Elias
Núna erum við Elías á fullu að undirbúa ferðina okkar.
Við leggjum af stað til New York 7. nóvember og þaðan förum við áfram til Suður-Ameríku. Erum orðin frekar spennt og teljum niður klukkustundirnar þangað til að við leggjum í hann.
Við höfum náð að undirbúa okkur töluvert, fjárfestum í nokkrum vel völdum ferðabókum og einnig kennslubókum í spænsku en eitt af því sem við ætlum að gera að fara í nokkrar vikur í spænskuskóla í Buenos Aires í Argentínu.
Listi yfir nokkra hluta sem við verðum að gera:
- Empire State.
- Tangó tímar í Buenos Aires.
- Ganga að Cristo Redentor á Corcovado fjallinu í Rio.
- Skoða bæinn Colonia del Sacramento við strendur Urugvæ.
- Og margt, margt fleira!
Við reynum að vera dugleg að setja inn myndir og skrifa um ævintýrin sem við lendum í :)
Þangað til næst,
Hildur
- comments
Halla Jónsdóttir Það verður gaman að fylgjast með ykkur í ævintýraferðinni.