Profile
Blog
Photos
Videos
Jææææja! Þá erum við fjórmenningarnir komin og farin frá London! Flugið þangað gekk bara vel, nema hvað lendingin var heldur harkaleg.. Fórum beint niður í Undergroundið og tókum lestina norðaustur á Picadilly Circus. Dásamlegt að koma uppúr Undergroundinu og sjá fallegu London í jólabúning :) röltum um göturnar þangað til við fundum stað til að fá okkur kvöldmat en sá hét Garfunkel's. Eftir mat röltum við upp að Oxford street þar sem við tókum lestina niður að Victoria og skiptum þar í Gatwick lestina því nú vorum við orðin þreytt og vildum fara að komast uppá hótel. Komum uppá lestarstöð og fórum á taxi line-ið til að spurjast fyrir um taxa uppá hótel. Undirrituð fékk vægt sjokk þegar taxa gaurinn sagði að hótelið væri í klukkutíma fjarlægð enda orðin dauðþreytt eftir langan dag! En hann var nú bara að grínast :) komumst uppá hótel, tjekkuðum okkur inn í 2 herbergi og fórum svo bara fljótlega að sofa - eftir langa heita sturtu þess ;)
Áttum flug í dag kl 10:50 þannig að við vöknuðum rétt fyrir 8 og tókum okkur til. Svo var það taxi niður á flugvöll þar sem við náðum að byrgja okkur vel upp af moskítóspreyi með 50% DEET :) flugið til Istanbúl var bara rosa fínt, matur framborinn í vélinni og fínerí. Eftir lendingu náðum við í töskurnar okkar, tókum út lírur og fórum svo í taxa röðina. Sýndum bílstjóranum hótel addressuna okkar og allt í góðu, löggðum af stöð. Heldur betur var þetta skrautleg ferð eins og mátti búast við fyrir þá sem hafa ferðast í tyrkneskum leigubílum. Jújú það voru bílbelti í bílnum en ekkert til að stinga þeim í! Bílstjórinn var svo hinn mesti multitasker, keyrði, las hótelbókunina okkar, fiktaði í ljósinu, setti á sig gleraugun og tók þau af til skiptis á milli þess sem hann flautaði á hálfan bæinn. En samt sem áður fínasti kall! Hann átti í mesta baslinu við að finna hostelið, þræddi göturnar og spurði marga sem virtust samt ekki vita hvar hostelið væri.. Stressið óx hjá okkur, meira hjá sumum en öðrum, og vorum við farin að halda að þetta hostel væri ekki til! En jújú á endanum fannst það og ji minn eini hvað þetta leit illa út! Vafasamur inngangur, nokkra hæðir af hringstiga og þá vorum við komin. Kemur þá í ljós að það var yfirbókað á þessu líka fína hosteli! Eigandinn alveg miður sín ( líka rosa næs og fyndinn kall) og bauð okkur 4 manna herbergi með engri hurð! Sagðist mundu setja gardínu fyrir hurðina og gera þetta voða kósí.. Eftir þónokkra umhugsun ákváðum við sð taka því í eina nótt (áttum 3 bókaðar) og sjá svo til með framhaldið.. En svo eru hér á hótelinu nokkrir arabar sem samþykktu að skipa við okkur um herbergi! Ástæðan var sú að þeir héldu að við værum 2 pör saman og vildu leyfa okkur að vera í herberginu með hurð! :) eigandinn spurði okkur svo eftirminnilega :"are you normal friends, or boyfriend and girlfriend?"
En við erum sem sagt búin að koma okkur fyrir og komin með WIFI!! :D og nú verður haldið út á götur Istanbúl í leit að kvöldmat :) menn eru að tala um kebab....
Ps. Erum rosa áhugasöm um þetta blogg núna og finnst gaman að blogga, efast um að það muni endast þannig að njótið á meðan það endist kæru vinir :)
Komment gera lífið skemmtilegra :)
-H ( með smá aðstoð frá hinum þremur )
- comments