Profile
Blog
Photos
Videos
ÉG LÝSI HÉR MEÐ YFIR AÐ FERÐALAG BIRGITTU ÁRIÐ 2008 ER HAFIÐ!!!
nú er ég stödd í Reykjavík, höfuðborginni sjálfri. Eflaust hvumsa sumir nú og hugsa; bíddu, bíddu, bíddu... hún er nú meira að segja enn á landinu!!! Þó svo að það sé satt, snúðarnir mínir, þá breytir það ekki þeirri staðreynd að ég er að LIFA UPPÚR FERÐATÖSKU, hence; ferðalagið er byrjað.
Annars sé ég fram á rigningardaga framundan
joy, joy, joy
mér finnst rigningin góð
honestly
njótið þess að skaðbrenna í sólinni hér á landi
á meðan mun húð mín anda að sér ferskum, þýskum andvara...yessssssss
en þó er ég enn að leggja lokahönd á plóg, kynning um ísland gengur hægt. Ef einhver á fallegar og/eða bráðfyndnar ljósmyndir sem eru "týpískt" íslenskar, þá myndi ég þiggja þær með þökkum... við nánari athugun myndi ég þiggja það vel ef einhver ætti kynningu um Ísland. Anyone? No? Maybe? Perhaps? Ich möchte gern ein bisschen Hilfen...
ég vil líka benda á þá staðreynd að þó ég sé ósofin og mjög þreytt á þessu augnabliki, þá hef ég enn nógu mikið vit til að átta mig á að ofangreind mynd er ekki íslensk, heldur er þetta dýrindismynd af frönsku ölpunum...
Ástæðan? Við búum á Íslandi gott fólk, og svo virðist sem engin af 100 undrum Evrópu séu hér á landi...frábært. Makes you feel special, right?
Það er á svona stundum sem maður réttir úr sér og segir (með þessum dýrindis íslensk-enska hreim sem einkennir margann íslendginn): "You know, we Icelandic people come from Vikings, and we have the best and purest water in the world, and we have the most beautiful country with many beautiful aluminium plants and lupins and dirt and sand, and of course you can't forget our gorgeus women who will sleep with you, the greatest one night stands in the world."
Nú sækir þreytan að og mitt mjög svo available rúm bíður mín
_Birgitta*englabossi_
p.s. ég er þreytt
- comments