Profile
Blog
Photos
Videos
Góða kvöldið
Já! Sem fyrsta svona official travel bloggið mitt, þá er náttúrulega rosalega spes að ég sé enn ekkert farin, huh? En já, ég er enn á Akureyri og ferðin hefst ekki fyrr en eftir 13 daga! Eða kannski tólf, ef Reykjavík telst með :) En ég ákvað, að þar sem ég er á fullu að skipuleggja ferðina, að láta vita af mér og að ég væri á lífi og það er spennandi að svona sjá: ahhhh svo hún var á Akureyri upphaflega? Exciting! En já, þetta er semsagt planið: blogga í ferðinni... hversu mikið sem ég næ nú af því!
Ég bara veit hvað það eru margir sem munu gráta sig í svefn á hverju kvöldi yfir hvarfi mínu, svo hér fá þeir smá svona til að halda sig á lífi næstu 2 mánuði :)
örvæntið ei, ég mun koma aftur :)
nú segi ég þetta gott og slútta þessu
góða nótt
*Berlínarbollan*
p.s. myndin sem fylgir er af væntanlegri staðsetningu minn :)
- comments