Profile
Blog
Photos
Videos
Gódan daginn, elsku samlandar mínir. Wie geht´s?
Dagurinn í dag er dagur nr. 5 í Thyskalands för minni, og so far er landid buid ad fara vel med mig. Mér til mikillar maedi, en eflaust ykkur til mikillar ánaegju, thá hefur vedrid ekkert leikid of vel vid mig. Vedrid var frabaert á sunnudag, sídan bara so, so á mánudag, i gaer var thad bara leidinlegt og i dag rigndi eins og hellt vaeri úr fötu. En hvers vegna held eg ad thessar fréttir muni gledja ykkur? Thví ég thekki ykkur og ég thekki Íslendinga almennt, ekkert gefur theim jafn lúmskt mikla gledi og ad heyra fregnir frá útlöndum ef thar er slaemt vedur, thá sérstaklega ef vedrid er gott heima fyrir. Thegar thessar fregnir berast ykkur, hríslast um ykkur tilfinning sem er engri annarri lík, hún er líkt og fíkn og thid rádid varla vid ykkur af ánaegju. Helst langar ykkur ad taka upp símtólid og hringja í alla sem thid thekkid, thannig ad í sameiningu getid thid gladst yfir fréttunum, fussad og sveiad yfir utanlandförunum og sagt: hvad eru their eiginlega ad hugsa? Audvitad á madur bara ad vera heima, thad er best og er alveg ókeypis... En hér kemur rúsínan í pylsuendanum, er eitthvad ókeypis heima á Íslandi? Er eitthvad sem heitir "ódýrt"? EF thid getid talid sjálfum ykkur trú um ad svo sé, thá lifid thid í heimi blekkinga og svika. Ég bid ykkur ad hafa thetta í huga thegar thid leggid höfudid a koddann ykkar í kvöld, kát í sálu ykkar yfir slaema vedrinu sem gengur yfir mig.
En nóg af skítkasti og röfli, snúum okkur yfir ad ánaegjulegu hlutunum. ÉG keypti stuttbuxur! Já, ég, Birgitta Bjarney Gudmunda Thorleifsdóttir, fór útí búd og thad alfyrsta sem ég keypti mér í Thýskalandi voru stuttbuxur. *Stolt* Sjáidi nú til, sídustu 6 skipti sem ég hef farid til útlanda, hef ég ávallt sett mér thad markmid ad kaupa stuttbuxur, en á einhvern undarlegan hátt hefur thad aldrei tekist. En af einhverjum ástaedum tókst mér loks markmid mitt, og thad án thess ad vera ad peala í thví.
Hvad annad hef ég nú gert? Hingad til hef eg farid nidur ad vatni, upplifad 3svar sinnum thrumur og eldingar, 2svar farid út í hjólatúr, og já sídast en ekki síst, farid í skólann thrjá daga í röd. Hingad til hef ég skilid ummm...ekki neitt í tímum, nema audvitad ensku tímanum í gaer (gledi, gledi) thar sem ég var audvitad ad rústa thessu.
Ífyrradag fórum vid Jenny út ad hjóla, og lá leid okkar to the country. Eitt ord: awesome! Thar sem vid hjóludum í sólskininu, leid mér eins og ég vaeri stödd í svona krúttlegri bíómynd thar sem adalhetjurnar hjóla í sveitinni med rosalega krúttlega tónlist í bakgrunni. Vid stoppudum á fridsaelum stad, svona stad thar sem madur gaeti farid med picnic og gegnum út á kornakur. Ein spurning, hafid thid einhvern tímann gengid út á kornakur med lokud augun, hendurnar útréttar thannig ad thid strjúkid "blómin" eda kornplönturnar eda hvad sem thetta heitir, og hlustad á golunar fara um akurinn? Nei? Thad hef ég gert. Yndislega fridsaelt. Thvi midur hafdi eg myndavelina ekki medferdis, og thvi verd eg ad fara thangad aftur thegar vedur leyfir.
Annars var ég núna ad koma frá Kiel, en vid Jenny, Tina og vinkona theirra Franzi fórum thangad eftir skóla í shopping mall. :)
Annars aetla ég nú ad beina athygli minni ad ödru, vona innilega ad bloggid hafi ekki verid of langt. ;)
ást til ykkar elsku eskimóarnir mínir ;*
_Birgitta*englabossi_
p.s. ég verd virkilega ad fara ad redda einhverjum almennilegum myndum svo ég thurfi ekki alltaf ad vera ad nota myndir frá einhverjum ödrum stödum :)
- comments