Profile
Blog
Photos
Videos
Jæja, jæja, jæja...
Langt síðan ég bloggaði síðast, ha? Jú, svo mikið er rétt. Í augnablikinu er klukkan hálf 1 á okkar síðasta kvöldi í Camp LC Kaltenkirchen. Við hliðina á mér situr giggly Emmy og hlær að öllu (við skulum bara segja að hún er "hress")
Ég skal hins vegar gleðja ykkur öll með því að segja að hér hefur veðrið ekkert leikið alltof vel við okkur. Nánast allann tímann hefur verið rigning, sérstaklega ánægjulegt var það þegar við fórum canooing; þegar ég, Fredrik og Ruben vorum saman í bát, og eftir 3 klukkustunda einbeitingu valt loks báturinn, við rennblaut hentumst aftur upp í bátinn, en akkurat þá kom þrumuveður. Já, þrumuveður... ég hélt ég myndi ekki sjá næsta dag, ég sver það. En heppnin var mér hliðholl og við sluppum, blaut en heil á húfi :)
En núna síðustu fjóra-fimm daga hefur veðrið verið aðeins betra, engin rigning, eilítill hiti, og síðust þrjá daga hefur verið kæfandi hiti, eiginlega of mikið fyrir mig. Sérstaklega þar sem þetta voru dagar sem við eyddum mikið í að keyra og að vera úti. Á fimmtudaginn fórum við í three-muskel-tour, sem felst í því að róa fyrst, síðan hjóla á einhverjum freaky hjólum og loks fara dulitla leið á lestarsporum, þar sem við pumpum einhverju dæmi áfram. Í gær fórum við í Heidepark, sem er rússíbanagarður, eða tívolí, og það var mjög fínt, nema ég þurfti að labba í skugganum allan tímann. Í dag fórum við svo til Lübeck í ratleik, en almáttugur minn, það var svo heitt að ég gat ekki hugsað, gekk meðfram skuggunum og svona. Annars fórum við á strandbar í gærkvöldi, aldrei hef ég gert það áður :) en það var awesome.
En nóg komið í bili, á morgun er ferðinni heitið til Berlínar; Jónasar, Kristin og litla sæta Sindra :)
_Birgitta*englabossi_
p.s. fyrstu myndirnar sem eru komnar eru fáar, en fleiri munu koma
- comments