Profile
Blog
Photos
Videos
Buena!!
Ta eru dagar minir her i Venezuela senn a enda. Alveg otrulegt ad tad seu tveir manudir sidan vid lentum a tessu ofurfallega landi. Adeins 4 dagar i brottfor en ta er ferdinni heitid til Boliviu og tadan til Peru. Vid Lara erum loksins bunar ad boka flug heim en vid lendum 16. juni a klakanum (sem verdur vonandi ordinn orlitid graenn ta).
Lokaferdin til Gran Sabana og Roraima hofst 21. april. Vid keyrdum i 10 tima og eg gleypti i mig tonokkrar bilveikistoflur sem hofdu misgod ahrif. Gat stundum varla haldid hofdinu uppi vegna treytu en taer komu to i veg fyrir bilveikina. Vandamalid er bara ad eg veit ekki alveg hversu oft eg ad taka tvi eg keypti tessar toflur i einhverju fjallaheradi i Tyrklandi og lyfsedillinn tvi allur a tyrknesku!
Fyrstu nottina gistum vid a rosa finum stad. Tar var klosett, finasta a til ad bada sig i og haegt ad kaupa kok! Madurinn sem var tar yfir vildi olmur tala tysku vid mig sem var bara ljomandi. Hann var med skritin or a maganum og vid heldum oll ad tau vaeru eftir einhverja adgerd. Tegar vid keyrdum burt daginn eftir sagdi Harold (leidsogumadurinn okkar) ad hann hefdi verdi faeddur og uppalinn i Sviss og unnid sem leigumordingi tar. Hann hefur buid i Venezuela sidustu 40 ar og getur (augljoslega) ekki farid aftur heim og nytir tvi hvert taekifaeri til ad tala tysku. Orin a maganum eru eftir skotsar en fyrir nokkrum arum redust 5 opruttnir a heimili hans og hann nadi ad yfirbuga ta og drap tvo! Allsvakalegt, frekar fegin ad hafa bara vitad tetta eftir a :)
Daginn eftir keyrdum vid inn i Gran Sabana en tad er svaedi tar sem adeins "innfaeddir" bua. Enginn annar faer ad flytja tangad nuna. Vid gistum i rosalega snyrtilegum og kruttlegum bae sem kallast San Fransisco. Folkid tar bjo i opnum husum med lauftokum en fyrir einhverjum arum akvad rikid ad byggja hus handa ollum. Svo oll husin eru eins en malud i olikum litum. Fyrst kunni folkid to ekki almennilega ad bua i svona lokudum steyptum husum svo allir byggdu ser gomlu utgafuna i gardinum. Tar eru flestir med eldunaradstodu, hengirum og tar hefur fjolskyldan tad nadugt saman a daginn. Vid gistum i tjoldum i gardinum hja Fernandez nokkrum en hann fylgdi okkur upp fjallid og bar fjoldan allan af mat, pottum og ponnum. Hann er halfblindur og hefur farid 600 sinnum upp Roraima!
Vid gistum i gardinum hans i 2 naetur og skodudum baeinn auk tess sem vid forum i fossaleidangur einn daginn sem var algjort aedi.
Fimmta daginn byrjudum vid svo ad ganga. Vid Lara og Asdis akvadum ad vera allar saman i tjaldi vegna tess ad tad er hlyrra (en tad er oft adeins 5 gradu hiti a toppnum) og minna ad bera. Samt sem adur turftum vid ad bera oll fotin okkar, hluta af tjaldi, svefnpoka, dynu og mat. Allir baru a bilinu 15-18 kg. Fyrsta daginn gengum vid ad fjallinu, meira og minna a jafnslettu sem var gott tvi tad tok sinn tima ad venjast bakpokanum. Vid tjoldudum svo vid a nokkra tar sem vid tvodum fotin okkar en eg var svo klar ad gleyma teim a steini i midri anni i nokkrar minutur og vatnid haekkadi svo hratt ad tad stal naerfotunum minum og sokkum. Sem betur fer var Marijn svo elskuleg ad lana mer sokka, annars hefdi eg turft ad ganga i haelasokkum tad sem eftir var! Daginn eftir byrjudum vid ad ganga upp fjallid sjalft. Eg bjost vid ad dagurinn yrdi rosalega erfidur svo hann vard eiginlega bara frekar audveldur.
Sidasta daginn gengum vid svo upp vegginn. Mestan hluta gongunnar turftum vid ad nota hendur og faetur tvi tad var svo otrulega bratt. Tilfinningin tegar vid komum loks a toppinn er olysanleg. Tessi ganga er tad erfidasta og besta sem eg hef gert hingad til, held eg bara! Fyrir ta sem vita ekki hvernig Roraima litur ut ta maeli eg med ad athuga a google. Tetta er magnadasta fjall sem eg hef sed og finnast vist hvergi annars stadar en i Venezuela og einhvers stadar i Afriku og eru fra tvi ad heimsalfurnar lagu saman herna um arid. Um leid og vid komum a toppinn tokum vid eftir tvi hvad landslagid var aaaaaaaaaaallt odruvisi.
Landslagid her er alveg otrulegt. Venezuela hefur vist eina fjolbreyttustu natturu heims. Her eru fallegar strendur, haedir, fjoll, ar, fossar, eydimerkur, slettur og fleira. A toppnum a Roraima er svo gjorsamlega annar heimur. Mer leid eins og eg vaeri komin a adra planetu. Allt er svart og naestum osnert af monnum. Oll skordyrin eru lika svort til ad verjast geislum solarinnar. Innfaeddir tala svo um ad fjallid sjalft stjorni vedrinu a toppnum. Tad getur breyst a innan vid minutu og getur verid algjorlega ofugt vid vedrid 700 m nedar. Folkid her truir tvi lika ad madur verdi ad bidja arnar um leyfi til ad fara yfir taer og madur ma ekki hafa laeti eda oskra sigurop a toppnum. Ad sjalfsogdu virtum vid taer reglur en samt sem adur var fjallid ekki nogu anaegt med okkur tegar vid komum a toppinn.
Vid gistum i tjoldum i helli a toppnum, nalaegt bruninni. Vid horfdum a solsetrid tar og tokum tonokkrar myndir. Adalsportid var ad halla ser fram og horfa nidur bratta vegginn en ef madur hefdi stigid einu skrefi of langt hefdi bedid manns 700 m frjalst fjall. Vid gistum tvaer kaldar naetur a toppnum en deginum aetludum vid ad eyda i 8 tima gongu til og fra landamaerum Venezuela, Brasiliu og Guyana. Eftir 3 og halfs tima gongu i greeeeeenjandi rigningu turftum vid ad skyla okkur undir litlum kletti. Einn drengur var naestum kalinn svo hann var knusadur i 10 minutur. Okkur var ollum svo otrulega kalt eftir tetta ad vid urdum ad snua vid to ad tad vaeri bara halftimi i landamaerin. Frekar svekkjandi en samt sem adur var tetta rosalega skemmtileg ganga tratt fyrir kuldann. Eg hafdi buist vid grati og gnistan tanna a leidinni upp fjallid en tad var ekki fyrr en vid stodum undir tessu skyli ad frjosa ur kulda sem tad var i fyrsta skipti stutt i tarin! Vid gengum svo somu leid til baka en okkur leid eins og vid vaerum i nyju landi. Tar sem allt hafdi adur verid autt og turrt voru komnar straumhardar ar, stoduvotn og fossar. Vid turftum ad haldast i hendur til ad fara yfir eina ana. Alveg mognud upplifun. Gaman ad segja fra tvi ad ef madur turfti ad gera numer 2 a toppnum atti madur ad gera tad i poka. A leidinni nidur bar svo elskulegi Fernandez ror med ollum haegdunum. Hann sagdi vist ad tad vaeri ovenju tungt en nokkrir voru med i maganum, agalega kosy.
Dagurinn sem vid byrjudum ad fara nidur var sa erfidasti. Vid gengum somu vegalengd og seinni tvo dagana upp fjallid. Allir voru bunir a tvi eftir daginn, med rusinutaer og blodrur a hverri ta. Sidasta daginn gengum vid svo lokaspolinn, stukkum upp i bil og keyrdum a hotel. Tar for eg i fyrsta skipti i heita sturtu sidan i London og svo brunudum vid yfir til Brasiliu tar sem vid forum a nokkurs konar barbikju hladbord.. Mmm tad var agalega gott eftir 10 daga af sojakjoti, supu og braudi.
Daginn eftir ad vid komum heim forum vid i vatnsrennibrautagard herna rett hja. Algjor snilld en eg a ennta erfitt med ad hreyfa hofudid eftir eina svakalega bratta rennibraut! A laugardagskvoldid var svo lokateiti og i dag foru flestir. Nu erum vid bara fjorir Islendingar eftir og vid aetlum ad finna okkur eitthvad skemmtilegt ad gera tessa viku.
Vid vorum svo otrulega otrulega otrulega heppin med hop. Vid nadum oll svo vel saman og eg mun sakna allra svo otrulega otrulega mikid. Kvedjustundin i dag var alveg faranlega erfid! En vid erum strax byrjud ad plana reunion :)
Tad verdur erfitt ad kvedja tetta YNDISLEGA land en vid hlokkum til naesta manadar. Nuna verdum vid i fyrsta skipti ad ferdast algjorlega a okkur eigin vegum, alveg einar. Tad verdur eitthvad!
Tangad til naest, Gneska
- comments
Skorri Frábært Gneska mín, alveg stórkostlegt! Við skulum nú ekki vera að nefna nein nöfn varðandi þyngdina hjá Fernandez, en... gleymdi Lalli imodininu?
Sessa Vá Agnes, það er svo magnað að lesa um þessi ævintýri ykkar! Þetta hefur greinilega verið alveg ótrúleg upplifun. Ég hlakka til að heyra frá næstu ævintýrum sem þið lendið í, gangi ykkur ótrúlega vel! :)
Snædís HAHA týpískt þú að láta ána skola nærfötunum og sokkunum burt!! En vá þessi ganga hljómar ótrúúlega vel!!! Og vá hvað fjallið er flottt! skil bara varla hvernig það er hægt að labba upp á toppinn!
Þórey Haha elsku tyrknesku bílveikistöflunar, engin Selma með hómópataolíur núna! Þessi fyrrum leigumorðingi hljómar alveg virkilega skuggalega, samt smá töff verð ég að segja. VÁ hvað ég hló mikið þegar ég las þetta með nærfötin og sokkana! Hefði alveg virkilega mikið verið til í að vera vitni að þessu! Þessi ganga hljómar eiginlega ótrúlega og trúi því vel að þetta hafi verið ótrúleg upplifun, veit samt ekki alveg með að gera númer 2 í poka, hlakka mikið til þess að heyra sögur um það síðar ;) vona að Hróbjartur hafi verið stilltur og góður og muni vera það áfram :) Get ekki beðið eftir að fá að heyra um Bólivíu og Perú! Kossar og knús frá Hondúras (ps. við erum bara frekar stutt frá hvorri annarri núna!)
Bogi ,,Negro" Benediktsson Já sæll!! Þú fórst upp fjallið í myndinni Up! Þú ert að fara að sýna mér myndir af þessu þegar þú kemur heim... og kannski horfum við líka á þessa snilldar mynd. Hafðu það gott Gnesa landkönnuður og rokkari og skemmtu þér ótrúlega vel.
La flaca Æjjj, ég sakna ykkar svo mikið! Ótrúlega gaman að lesa þetta blogg og rifja upp þetta yndislega ferðalag!! Skemmtið ykkur ótrúlega vel það sem eftir er af ferðalaginu :D Hlakka til að hitta ykkur svo á Íslandinu góða.
Tanja Okaaaaaaaaaaaaai ég skoðaði þetta fjall á google... HVERNIG Í ANDSKOTANUM er hægt að klifra upp það :O ??? omægad. btw kúkur í poka.. það er fyndið.