Profile
Blog
Photos
Videos
Hola! Ta erum vid Lara loksins komnar til Venezuela a.k.a. paradisar. Sunnudaginn 10. mars logdum vid af stad, aflusadar og ferskar sem aldrei fyrr. Vid flugum fra London - Madrid - Caracas - Barcelona og Lara var svo heppin ad taskan hennar var skilin eftir i Madrid. Tegar vid komum svo a okkar nyju heimaslodir, Playa Colorada, komumst vid ad tvi ad fjorir af trettan fengu ekki toskuna sina. Tad er vist daglegt braud herna i Veno! Vid erum sem sagt trettan i tessu programmi sem kallast Travelling Classroom. Tad maetti segja ad vid seum a ollum aldri en taer yngstu eru 18 ara og elsti er einhvers stadar a bilinu 60-70 (vid torum ekki ad spyrja hann svo vid kollum hann bara gjemla). Hann er Tjodverji og talar mjog takmarkada ensku svo hann talar bara vid mann a tysku. Hinir eru to a bilinu 18-25. Vid erum 5 Islendingar og svo eru 4 Hollendingar, einni Belgi, einn Finni, Tjodverjinn godi og einn Breti sem tolir ekki ad heyra islensku eda hollensku. Fyrstu vikuna var Skorri, bekkjarbrodir minn ur MR, herna svo tad var mikid Islendingateiti. Vid erum i programmi sem kallast Travelling Classroom en tad er blanda af spaenskunami og einhvers konar ferda-aevintyra-flipp-dagskra. Vid buum i "camp-i" sem er alveg faranlega flott. Vid getum valid um ad sofa i hengirumi eda rumi. Tad er alveg otrulega gott ad sofa i hengirumi, kom mer algjorlega a ovart. Til ad fara a strondina tufum vid ad fara yfir eina gotu en strondin herna er yndisleg. A virkum dogum er ekki salu ad sja en um helgar er strondin trodfull af folki og ta er i bodi ad fara a tudru og banabata og fleira. Playa Colorada er pinulitill baer, eg sver ad tad eru ekki mikid fleiri en 7 gotur. Tar er ekkert simasamband og ekki haegt ad komast i tolvu svo eg mun ekki blogga neitt rosalega oft. Vid turfum ad taka rutu/straeto i 45 minutur til baejar sem heitir Puerto la Cruz til ad komast a veraldarvefinn en tar er ekki heldur neitt samband svo eg verd ekki med simasamband i tvo manudi! Allt er alveg rosalega odyrt herna.... eda t.e.a.s. ef madur midar vid gengid a gotunni. Gjaldmidillinn her heitir bolivar og er rosa merkilegt fyrirbaeri. Ef madur skiptir opinberlega eda tekur ut i hradbanka ta faer madur 6 bolivars fyrir einn dollara en ef madur skiptir a gotunni faer madur 18-20 bolivars. Svo allt er mjog odyrt ef madur midar vid tad gengi! Her i Puerto la Cruz er alltaf folk ad koma upp ad manni og spyrja mann hvislandi hvort madur vilji skipta. Eg held samt ad eg haldi mig bara vid ad skipta vid folkid i Jakera. Literinn af bensini kostar um 2 kronur sem er svona 50 sinnum minna en vatnid, alveg bilad! Maturinn herna er lika rosa godur, Venezuelarnir kunna adeins betur en Indverjarnir og Kenyubuarnir ad nyta matinn til ad bua til olika retti. Her er lifsnaudsynlegt ad vera med personuskilriki a ser ollum stundum. Ef loggan stoppar mann og madur er ekki med slikt ta er tad alika mikill glaepur og ad vera med dop a ser. En ta getur madur mutad logreglunni med pening, tad gera tad allir! Drykkja er lika rosalega edlilegur og vidurkenndur hlutur. Her ma sja logreglubila stoppa, stokkva inn i sjoppu og kaupa 2 bjora og halda svo afram vinnudeginum. Einnig er algeng sjon ad sja slokkvilidsmenn a motorhjolum... veit ekki alveg hvad teir aetla ad gera ef tad kviknar i, kannski blasa a eldinn. Venezuelabuar eru hinsvegar alveg yndislegt folk. Allir eru rosa opnir, gladir og tilbunir ad spjalla en samt finnum vid ekki fyrir neinu areiti. Gaeti alveg hugsad mer ad flytja hingad!
Dagurinn her lysir ser tannig ad vid voknum alltaf a slaginu 6, bara vegna birtunnar og hitans, en nuna er heitasti timi arsins her. Vid forum svo i morgungongu upp haedina herna og svo er morgunmatur. Vid hofum svo yfirleitt einhverja dagskra a morgnana og kvoldin eins og klifur, danskennsla, skodunarferdir og fleira en oft er lika bara frjalst. Seinnipartinn er svo alltaf 4 klukkustundir af spaensku.
Sidustu helgi forum vid i tveggja daga utilegu ut a nalaegar eyjur. Vid rerum fyrsta daginn a kayak i sirka 3 klukkutima. Tad voru brjaladar oldur og vid Lara voknudum med dagodar hardsperrur daginn eftir. Vid svafum i hengirumi uti og snorkludum i kristaltaeru vatni med marglyttu a staerd vid tvofaldan rassinn minn. Daginn eftir rerum vid svo a spegilslettu vatni yfir a adra eyju og saum um 30 hofrunga. Nokkrir komu tad nalaegt kayaknum ad eg hefdi getad snert ta ef eg hefdi teygt mig fram! Vid gistum i tjaldi a strondinni tad nalaegt sjonum ad hann sleikti tjaldid odru hverju. Tad var yndislegt ad sofa vid hljodid i oldunum. Vid spiludum og lagum i solbadi og reyndum ad horfa a solsetrid (misstum af tvi) og hofdum tad ljuft. Tetta voru med teim bestu dogum sem eg hef upplifad, eg trui eiginlega ekki ad tetta ser raunverulegt. Folkid herna er lika frabaert og vid naum vel saman! Hlakka bara til ad vera med teim naestu 6 vikurnar! I gaer forum vid i fjallgongu en vid logdum af stad kl. 5 um morguninn tvi tad er of heitt ad fara seinna. Mer tokst ad flaekja mig i trjagrein tegar eg var a fleygiferd nidur fjallid og tokst ad skemma nyju hlaupabuxurnar minar, snillinn eg! Slapp samt nokkud vel med marbletti og skramur en eg haltra adeins, haha.
Vid Lara splaestum svo i ad vid heldum banana i sjoppunni a naesta horni. Tetta reyndust vera einhverjir feik bananar sem kallast eitthvad annad og madur faer i magann ef vid bordum ta hraa. Ein stelpan vissi tetta og reyndi ad segja okkur tetta en Lara sagdi bara "Neinei, eg hef oft bordad svona adur" svo vid akvadum ad borda ta! 10 minutum seinna fekk eg krampa i magann og vid erum enn ad vinna i tvi ad losa okkur vid hann ur likamanum. Adallega bara fyndid... vid holdum ad vid seum ordnar svo sjoadar ad vid turfum ekki ad hlusta a radleggingar fra odrum!
A manudaginn leggjum vid svo af stad i 8 daga kayakferd upp fljotid inn i frumskoginn Orinoco Delta en tar eru vist 2 cm langar, feitar, svartar flugur sem bita mann i taetlur, meira ad segja i gegnum fot, og tad virka engar varnir a taer! Spenno!
Tad tok mig nokkra daga ad venjast lifinu her. Finnst svo skritid ad vera bara i frii, ad njota lifsins til hins itrasta og hafa engar skyldur og enga abyrgd. Serstaklega eftir tessa tvo manudi i Indlandi og Kenyu finnst mer eitthvad svo rangt og sjalfselskt ad vera bara ad njota lifsins. En eg verd vist ad saetta mig vid tad naestu tvo manudi. Eg sakna samt Indlands og Kenyu og mun orugglega alltaf gera tad!
En nu verd eg ad drifa mig tvi vid erum ad fara ad aefa ad siga vegna tess ad i fyrramalid forum vid ad siga nidur foss. Svo er heldur ekki snidugt ad vera uti eftir myrkur!
Adios :)
- comments
Haffa Mar hahaahhahahahahaa ég sé þig svo fyrir mér flækta í trjágrein! hahahaha fékkstu svipaðan marblett og í hylnum?
Alma Þetta hljómar alltof alltof alltof vel og spennandi! Hahah mjög fyndið með fakebananann, sé þetta alveg fyrir mér og það sama með trjágreinina! Njótið lífsins og góða skemmtun í kayakferð, bið að heilsa flugunum :/ los mejores saludos
kúkur Roleg a stuldinum en eg fyrirgef þvi við erum bestu vinir... gleymdir að minnast a það
Þórey ókei ég er bókstaflega GRÆN af öfund!! strönd, kayak, hengirúm og spænska .. hljómar svo ótrúlega of vel vá! ég verð að heimsækja þennan stað einhverntímann :) Trúi ekki að þú hafir eyðilagt fínu hlaupabuxurnar hahaha, sé þetta alveg fyrir mér samt ;) Svo of fyndið með þessa banana, vona að þið séuð orðnar betri í maganum núna (enda með nóg af sýklalyfjum hoho) Njóttu þess að njóta lífsins í botn! Sakna ykkar voðalega mikið :( PS. passaðu þig á flugunum!
Agnes Engilbertsdóttir og Gunnsteinn Gunnarsson Mikið erum við alltaf glöð að fá frá þér fréttir. Þú ert svo glöð og skemmtileg að segja frá, þó ekkert sé, nema um rifnar göngubuxur! Það finnst okkur afa mjög sniðugt, og allt hitt, og gamla fólkið fer nú senn að öfunda þig. En mest verður gaman, þegar þú kemur heim. Kveðjur frá ömmu og afa.
Snædís Ahh gott að þið eruð að njóta lífsins!!! Mig er samt farið að þyrsta í fleiri myndir!!! PS. lol á bananann hahaha!
Tanja Meiri myndir ! :D Skemmtileg bloggin þín og sjæsen hvað þessi marglytta hefur verið GIGANTIC ;) - Var þetta mjölbanani ?