Profile
Blog
Photos
Videos
6. Feb
Fórum með Jaynýum vini okkar frá ástralíu a bilnum hans til Nimbin, hippabær þar sem mátti finna regnboga kaffihús, regnboga strætó, regnbogasjoppu og svo framvegis.
Mikið verið að reyna selja manni gras í þessum afslappaða bæ.
Borðuðum hamborgara í hadegismat og röltum i gegnum hippa safn, þar sem mátti sjá allskonar áróðursskilti fyrir því að lögleiða maríjúana.
Eftir þetta keyrðum við lélegan hlykkjóttan veg að Fossi sem átti að vera tfir 100m hár og rosa fallegur, þegar við loksins komum þangað var svo lítið flæði í fossinum að það var varla hægt að sjá vatnið.
Röltum í kringum svæðið í þeirri von að sjá einhver villt dýr en einn froskur var það eina sem varð á vegi okkar.
Keyrðum til baka í Byron Bay þar sem við tókum bakpokana okkar og allt dótið með okkur út að borða með krökkunum á Cheeky Monkeys. 5$ dollarar maltíðin og finn matur.
Eftir matinn foru krakarnir i rikið og aftur uppá hotel að drekka en við settumst niður og biðum eftir rútunni.
7. Feb
Eftir langa nótt í rútu þar sem ekki var hægt að halla sætunum en netið virkaði ( varla samt þar sem það var svo rosa rosa hægt).
Þegar við komum ur rutunni og vorumm stödd á central station að finna út hvernig við gætum kominst uppa hotel var stræto odyrasti valkosturinn (1000kr fyrir okkur saman sirka) svo við satum i strætunum og vorum alltof spennt að komast a hostelið þar sem við attum bokaðar 5 nætur, svo ekki fleiri rutur i bili.
Hostelið var svosem ágætt, stórfurðulega upp sett a mörgum hæðum og minnti soldið a völundarhús. En þarnar var eldhús, svalir, sjónvarp, sturta og klósett og það dugði okkur.
Eftir að hafa hent af okkur bakpokunum og hvílt okkur í klukkutíma, röltum við að stað niðrí bæ þar sem við týndumst soldið a leiðinni en við vorum ekki lengi að finna okkur aftur eftir nokkra hringi og beygjur komumst við niður í miðbæ.
Röltum verslunargötuna og sáum fullt af götulistamönnum að sýna listir sýnar.
Fórum á sushi í verslunarmiðstöðinni mjög gott og ódýrt, 16 bitar á tæpan 2000kr.
Pakksödd gegnum við um Darling Harbour, og svo heim á leið. 60 mínutur a góðum hraða sem það tekur okkur að ganga heim, dauðþreytt fórum við snemma að sofa á föstudagskvöldi meðan hinir krakkarnir a hostelinu byrjuðu að drekka og djamma.
8.feb
Kornflegs í morgunmat, halndklæði og sólarvörn í bakpokann og rölt af stað niður í miðbæ, þaðan tókum við strætó á Bondi beach, tók ekki nema tvo klukkutíma ílaugardags umferð í troðnum strætó, allir a leiðinni á ströndina.
Þegar við loksins komum eftir þetta svaka ferðalag fengum við okkur hamborgara í hádegismat og mökuðum a okkur sólarvörn.
Tan tan tan og þegar arnar var að verða bleikur létum við það gott heita klæddum okkur í föt og tókum strætó til baka sem var ekki jafn lengi a bakaleiðinni þar sem mun minni umferð var a þessum tíma.
Gengum um miðbæinn og hafnarsvæðið og fundum okkur veitingastað til að geta smakkað kengúrukjöt.
Á leiðinni til baka heim fundum við þennan fina sushi train stað þar sem allir diskarnir voru á 300kr isk sirka. Pakksödd gengum við af stað heim til að ná að tala við foreldrana á skype fyrir svefninn. Tímamismunurinn ekki nema 11 tímar svo við dauðþreytt að fara sofa og hinir nývaknaðir.
9. Feb
Um hádegi lögðum við af stað niður í bæ og þaðan í lest til Blue mountains sem tók 2 klst í "quiet carrige" þar sem voru tvö grenjandi börn, vinahópur sem hló og talaði full hátt og maður að spila tónlist úr tölvunni sinni þratt fyrir 20 skilti útum allt að biðja fólk um að setja símann sinn á silent og sleppa því að tala.
En lestin for allaleið þratt fyrir óþarfa hávaða og læti.
Gengum frá lestarstöðinni i halftíma að Echo Point þar sem útsýnið var ekki af verri kantinum. Skógur og fjöll og dalur ogsólin að lýsa á allt.
Gengum að Three Sisters, þrír grjótdrangar sem standa út frá hamraveggnum.
Þaðan var svo hinn Giant Staircase, 900 tröppur niður í dalsbotninn, við skokkuðum þetta léttilega niður og þegar við komum niður sáum við við. Höfðu. Misst af síðustulestinni sem fer með mann upp aftur. Tröppurnar voru ekki alveg jafn léttar svona á leiðinni upp en gott stigaþrek engu að síður.
Sveitt og glöð komumst við upp aftur, gengum að lestarstöðinni og hittum aftur allt sama folkið í hljóðláta vagninum, grenjandi barnið sem var orðið uppgefið af .reytu og grenjaði nú enn meira en í fyrraskiptið.
Loksins komin úr lestinni þegar við gengum mjög rösklega að veitingastaðnum Olivo þar sem við vorðum orðin glorhungruð og spennt að smakka kengúru.
NAMM NAMM NAMM!
Við vorum buin að skipta um föt eftir fjallgönguna og vorum orðin temmilega fín til að borða svona góðan mat.
Smökkuðum sitthvort rauðvínsglasið, ég smakkaði fra vestur ástralíu og arnar frá nýja sjálandi. Í forrett fengum við svo nauta carpaccio, ofurþunnt skorið hringlaga og fyllti út í diskinn 20cm í þvermál mjög ljúffengt og hinn forrétturinn var fullt skál af blönduðum ólífum!
Alltof gott og við ekki enn komin að aðalréttinum Kengúrunni.
Kengúrufillet bragðast allt öðruvísi en annað kjöt sem ég hef smakkað, öðruvísi bragð en mjög gott.
Eftir matinn röltum við heim dauðþreytt og sátt með að geta lagst uppí rúm og steinsofnað.
10. Feb
Tókum strætó niðrí bæ þar sem stefnan var tekin á óperuhúsið, skýjað veður og þæginlegt að ganga um.
Stoppuðum á kaffi húsi áleiðinni til að skrifa dagbók og skoða hótel fyrir næstu daga.
Lífið er gott og okkur líður vel hér í Sydney.
Yrsa & Arnar
- comments