Profile
Blog
Photos
Videos
21. Jan
Út að borða á Blind Dining, stór furðulegt að vera i svarta myrkri og sja ekki neitt en mjög gaman að prufa, finn matur og almennilegt starfsfólk.
Eftir að hafa borðað 14 rétti (með höndunum, nema Hlíf sem er til fyrirmyndar og notar alltaf hnífapör) fengum við að giska a matseðilinn, hittum ekki a allt rett og vorum frekar langt fra þegar við sögðumst hafa borðað fisk sem var í raun kjúklingur.
22. Jan
Fórum aftur niður í bæ, skoðuðum central market þar sem Arnar fekk ser langþráðan subway. Röktum svo aftur að chinatown og keyptum fleiri solgleraugu og veski. Settumst svo niður og borðuðum pizzu aður en við tokum leigubil aftur heim.
Vorum rosadugleg og skelltum okkur i ræktina svitnuðum fullt og nutum þess.
23. Jan
Gerðum okkur ferð i Curves þar sem atti að vera ecco buð til að laga skona mina, en ecco buðin var flutt og við enduðum hja skosmið i bilakjallaranum.
Meðan við vorum að biða eftir viðgerðinni fengum við okkur hamborgara a skemmtilegum veitingastað þar sem i miðri máltíð byrjaði allt starfsfolkið að dansa við "gangnam style" og svo lika "gentleman", stórgóð skemmtun og góður matur.
Rólegt kvöld og kósý
24. Jan
Smá sólbað áður en við fórum i 1 Utama mollið að prufa klifurvegginn þar.
Risa klifurveggir og nóg að gera, byrjuðum bara i litlum 6m vegg engum böndum og dýnur undir. Eftir að hafa prufað það soldið tók meiri alvara við. 12 m hár klifurveggur, öryggisbönd og læti. Klifruðum af okkur fingurgómana, Arnar flaug upp 12m meðan Yrsa lofthræddi kjúklingur fór bara upp 11 m.
Að lokum voru allir sáttir, sveittir og þreyttir og versluðum okkur stuttbuxur aður en við tokum leigubíl heim.
Út að borða á góðan ítalskan veitingastað þar sem við fengum þessar ljúffengu þunnbotna pizzur.
25. Jan
Sólbað og sund fram yfir hadegi, slöppuðum af og borðuðum subway i kvöldmatinn og horfðum a Gravity, frekar spes geimmynd sem er ekki besta skemtunin, langdregin og litið að gerast.
Letidagur, pakka niður og bara gott lif.
26. Jan
Vöknuðum og kláruðum að ganga fra dotinu okkar, kókopuffs i morgunmat og nú erum við að fara í rútu til Singapore.
Alltof mikið af allskonar spennandi activity þar og nú verðum við að velja úr og njóta.
Hótel Hlíf fær bestu meðmæli sem hægt er að fá!
Takk fyrir allt, þetta er búið að vera æði!
Yrsa&Arnar
- comments
Hlíf Þorgeirs Takk sömuleiðis fyrir komuna frábært að hafa ykkur hér. Haldið áfram að fara varlega og góða skemmtun í Singapore