Reykjavik, Iceland
Velkomin á þessa bloggsíðu okkar! :) Við ætlum að reyna vera duglegar að henda inn bloggum og aðallega myndum á meðan við erum í þessu ferðalagi okkar.
Það er mæting upp á Keflavíkurflugvöll eldsnemma í fyrramálið þar sem við byrjum á flugi til Helsinki og förum þaðan til Peking. Við eigum að lenda 06:55 í Peking á miðvikudagsmorguninn og verðum þar í 2 daga. Þaðan fljúgum við til Guilin þar sem við verðum í 2 vikur...


