Profile
Blog
Photos
Videos
Ti nâu!
Vid erum bunar ad vera OTRULEGA duglegar undanfarna daga!! Skelltum okkur sidasta sunnudag i 4 daga 'hardcore' trekking thar sem vid kynntumst hinum ymsu aettbalkum her i nordur-Vietnam.
Fyrsti dagurinn var erfidur gongulega sed, hofdum litid hreyft okkur af viti sidan fjallid goda i Huangshan. En thar sem vid erum badar afskaplega thrjoskar orkudum vid upp hverja brekkuna a faetur annarri, masandi og blasandi, i um 30-35 stiga hita. Og thad var vel thess virdi, hrikalega fallegt landsvaedi! Vorum komnar a lokaafangastad (H'mong village) um 4 leytid. Okkur til mikillar furdu reyndist poolbord a kaffihusi vid hlidina a gistiheimilinu okkar, ekki alveg jafn 'remote' thorp og vid hofdum imyndad okkur. Spiludum pool vid afskaplega aesta heimamenn og bordudum svo dyrindiskvoldmat med gistiheimilisfjolskyldunni. Fengum ad smakka 'ricewine' (lika kallad happy water) sem leidsogumadurinn okkar var buinn ad dasama vid okkur og byggdi thad lof a hversu gott vinid vaeri fyrir heilsuna ona hversu bragdgott thad vaeri. Hamingjusamt vatn er nu meiri subbuogedisdrykkurinn! Alveg hrikalega afengur og smakkast eins og blanda af mygludu whisky og vodka. Oheppilega thotti heimamonnum vid haefi ad skala a 30 sekundna fresti en tha athofn var einungis haegt ad framkvaema med thatttoku hamingjusama vatnsins. Eftir 3 skot gatum vid ekki meir og thottumst einungis drekka. Su blekking entist i 30 sekundur eda thar til naesta skal atti ad eiga ser stad og their aetludu ad fylla a glosin. Vid haettum a ad vera donalegar og neitudum ad drekka meir, sokum ekki besta bragds i heimi og mogulegrar magaveiki sem fylgikvilla ofdrykkju thessa drykks. Vorum afskadar pent en urdum tho ad skala afram med theim allt kvoldid (an thess ad drekka).
Neasta dag vorum vid eldhressar og strax i adeins betra formi, tilbunar i langan og strangan gongutur. En leidsogumadurinn, sem drukkid hafdi adeins meira hamingjusamt vatn en vid, var ekki alveg jafn hress. Hann thvaeldist um thunnur a eftir okkur og stoppadi alltof oft til ad fa ser sigarettu sem hann kalladi svo skemmtilega 'lyfid sitt'. Nadum gjorsamlega ad ofthreyta greyid med thvi ad krefjast ad fara alltaf lengri og erfidari leidina og thegar vid loksins komum i thorpid sem vid aetludum ad gista i (BanHo) var hann alveg buinn a thvi. Vid vorum hins vegar enn eldhressar en hofdum nakvaemlega ekkert ad gera (ekkert poolbord i thessu thorpi). Endudum a ad spila rommi i marga tima eda thar til kvoldmatur bar borinn fram. I kvoldmat voru andarinnyfli og andarblodssupa og til ad toppa dyrdina hafdi afskaplega fullur madur 'djoinad' bordhaldid. Hann tok astfostri vid okkur, aepti stodugt 'MY FRIEND, HAPPY NEW YEAR' og reyndi ad mata okkur med sinum afskaplega hreinu hondum. Aftur vorum vid pindar i 'ricewine' drykkju og ef eitthvad drakk leidsogumadurinn meira en daginn adur. Vid vorum fljotar ad afsaka okkur fra bordhaldinu og halda rommi-inu afram. Thegar localmennirnir voru bunir ad borda naegju sina og stuta morgum litrum af 'ricewine' var kominn timi a karaoke! (karaoke graejur i kjallaranum). Thannig vid eyddum kvoldi 2 i ad oskra okkur hasar (hann stillti tonlistina a heasta svo edlileg tonhaed heyrdist ekki neitt) i karaoke, monnunum til mikillar hamingju.
Leidsogumadurinn hafdi lofad okkur erfidum degi a thridja degi og sa vaentanlega mjooog eftir thvi thegar hann vaknadi, enntha thynnri en morguninn adur. Plus thad, ad thetta var heitasti dagurinn til thessa, um 35 gradur, glampandi sol og enginn vindur. Aftur nadum vid algjorlega ad gera ut af vid leidsogumannsa sem skyldi ekki thvilikur ofurkraftur thetta vaeri a okkur (sa ekki tengingu milli hamingjusamavatnsofdrykkju og lelegs dagsforms). Endudum aftur i sama thorpinu (BanHo) thar sem enn a ny, vid neyddumst til ad drekka 'ricewine'. Tho var maltidin mun girnilegri en kvoldid adur og fulli madur farinn a veg allrar veraldar. Svo tok vid kvold 2 i karaoke. Thegar vid forum loks ad sofa (ekki fyrr en um 9 leytid) byrjadi hani nokkur ad gala af fullum krafti, okkur til oumraedilegrar gledi. Hann helt ut thar til fram yfir midnaetti en hljomadi eins og hann vaeri ekki alveg jafn heilsuhraustur undir thad sidasta. Vid svafum mjog litid tha nottina.
Sidasti dagurinn var minnsta labbid en erfidasta. Allt uppa vid og mjog brattar brekkur. Vorum komnar heim um 3 leytid i gaer og eyddum deginum i ad thvo af okkur skitinn og thvo fotin okkar (ekki bunar ad fara i sturtu sidan fyrir 'trekking' og nanast bunar ad vera i somu fotunum allan timann- subb).
I dag erum vid svo bunar ad gera mjoog litid. Forum til Hanoi seinna i kvold med naeturlest. Styttist i Afriku, otrulega tilhugsun! Lifid er frabaert :)
xxxx
S&H
ps. viljum minna a 'messageboard' her ad ofan, alltaf gaman ad fa komment:)
- comments