Profile
Blog
Photos
Videos
Eftir 4 daga verðum við í Perú! Og eftir eina viku verðum við í Amazon frumskóginum... Við erum svo ekki undirbúin fyrir þetta.
Seinustu 2 vikur hafa verið nice! Kvaddi ísland með fjörlegu partý heima hjá mér og svo flugum við Haffi til Alicante þar sem Pabbi kom að sækja okkur :)
Veðrið hefur verið ágætt, þrátt fyrir klakahaglél og þrumur og eldingar. Erum búin að fá okkur Sangríu, bjór og Tinto de Verano á hverjum degi. Og súkkulaði með. Ekki beint heilsuátak, en afskaplega notarlegt með familíunni.
Vorum að tjilla á ströndinni í gær. Algjör steik þegar sólin kom, og krakkarnir léku sér allan tímann í sjónum, við stundum með. En vá hvað hann var kaldur! Sjórinn verður aðeins hlýrri í Karabíska hafinu hjá Bocas del Toro í Panama.
Svo kemur Sunna í kvöld :) Pabbi verður fimmtugur á morgun, þá verður veisla!
Svo kveðjum við á föstudaginn, fljúgum fyrst til Madrid, og setjumst síðan upp í flugvél og verðum þar næstu 12 tímana, og lendum í Perú á laugardagsmorgninum. Þá verður maður eflaust stífur í hálsinum. Verð að finna mér uppblásanlegan ferðahálspúða.
Í dag er spáð þrumum og eldingum. Svo við ætlum að fara að versla allt og panta fyrir ferðina :)
Þar til næst-
Bryndís Skarp.
- comments