Profile
Blog
Photos
Videos
Jæja! Við komum til Cape Town fyrir 2 dögum og gistum á bakpokaheimili sem ég vil kalla brimbrettafólkskommúnu.. Þetta var ekkert nema eitthvað brimbrettafólk sem var búið að vera þarna saman heillengi og skiptust á að vera í sjálfboðaliðastarfi og á brimbrettum.. Jú og 3 hundar, 2 border collie og Fred (hundur eins og í Smokey and the bandit), það var gaman þar til við áttuðum okkur á því ad þeir geltu mjööög oft og mikið
Þar sem við vorum bara með gistingu þarna í 2 nætur og það var allt að fyllast af brimbrettafólki fórum við eiginlega bara strax í að finna okkur annað hótel og viti menn! Við fundum æðislegt og ódýrt hótel mjög nálægt túristasvæði! Núna sitjum við inni á hótelherbergi, horfum á sjónvarpið og spilum öll möguleg spil sem okkur detta í hug og bíðum eftir því að blöðrurnar, sárin og sólbruninn jafni sig. Hótelið sem við erum á er æði, allavega við fyrstu sýn..
So far so good!!!
Afríkukveðjur, Unnur og Hawk (það getur enginn sagt Haukur, hah!)
- comments
Tótla dúllurassar skemmtið ykkur endalaust vel knús og kossar. Tótla og auðvitað xtra knús frá Lillý
MammaGull Elskunar mínar , vona að blöðrurnar fari fljótt og bruninn verði að engu. Bera vel á sig sólarvörn EITTÞÚSUND , það dugar ekki neitt minna. Þetta grær vonandi allt áður en þið komið til LA ( blikk blikk ), við omsý túddsý ( amma Tóta ) verðum þar, búnar að finna rosa flottann Elvis fyrir ykkur.