Hahahaha! Rússar eru greinilega frábærir. Ruski! NO! haha. Vona að þið fáið samt eitthvað að borða... Skemmtið ykkur ógeðslega vel. Og ég vil líka sjá myndir!
Monique
híhí fann loksins message boardið :p var búin að leyta í nokkra daga
vona að þið fáið nú eitthvað að borða þarna
hlakka til að lesa meira :)
Guðrún Ásta
Kvitt.
S&h
Jeij, gaman ad sja hvad thad eru margir ad skoda :) Reynum ad vera duglegar ad blogga og vonandi fylgja myndir bradum
Hildigunnur
HA HA HA ég frussaði Kaffi yfir alla tölvuna mína
Belinda
Mig dreymdi í nótt að ég væri í skrítnu landi þar sem enginn talaði ensku og fann ekki hótelið mitt og enginn vildi tala við mig. Skildi ekki drauminn fyrr en ég las bloggið, hlýt að vera með ykkur í anda:)
Frábært blogg, láum í kasti yfir þessu og höldum áfram að fylgjast með ykkur. Vona samt að ég fái ekki fleiri óþægilegir draumar, þetta fer illa með taugarnar!
Elka
ÚÚ ótrúlega spennandi hjá ykkur, ég bíð spennt á refresh takkanum eftir næstu færslu ;) Og ég tek undir með Kristínu, þú verður dugleg að safna punktum fyrir okkur ;)
Sigurður Grétar Jökulsson
Frábært að þið séuð komin með síðuna á fullu og byrjaðar í ævintýrinu. Vona að þið komið reglulega með uppfærslur og skemmtilegheit á síðuna og myndir að sjálfsögðu :)
Annadís G. Rúdólfsdóttir
Til hamingju með að vera komnar. Flugstöðin er eins og villta vestrið. Hefði átt að vara ykkur við. Fór í gegnum það apparat með mömmu og tveimur börnum 5 og 2 ára. Fengum enga forgangsmeðferð. Muna svo að stúdera cyrillískuna (akrýllískuna eins og ég hef stundum kallað hana) svo að ekki verði svindlað á ykkur á veitingastöðum. Gangi ykkur vel.
Kristín Ósk
jii hvað ég er glöð að þú farir til rússlands á undan mér, þú safnar saman öllum punktum og þá verðru þetta ekkert mál fyrir mig ;D
annars var þín sárt saknað heiða í vísindaferðinni á föstudaginn, þú "kemur með" næst
Heiðumamma
En hvað það er nú gaman að fá fréttir af ykkur. Þetta eru búnir að vera erfiðir tveir sólarhringar hér heima. Gott að allt gengur svona vel. Farið samt varlega og munið að þið skemmist ekki þarna úti því kjöt geymist svo vel í kæli.Ástarkveðja héðan af Ströndinni:)
Eyþór Kári
munið, þetta á að vera ævintýri :) þýðir ekkert annað en harkan 7. vonandi lendiði í þægilegra fóli það sem eftir er. farið varlega og njótið vel. hlakka til að heyra meir af ykkur :D