Profile
Blog
Photos
Videos
vá maður lifandi! hvar skal ég byrja...tveir dagar hér búnir og ég er með fullt af sögum að segja frá!
ferðafélagar mínir btw. eru...Freyja, Ágúst, Ásdís, Pétur, Íris og Valur! frábært fólk alveg í gegn!
í fyrsta lagi...vá hvað flugfélagið Kenya-Air er awesome flugfélag og mæli eindregið með því! þrátt fyrir að flugið tók 8tíma þá var þetta bara nokkuð ljúft...flugvöllurinn heitir "Jomo Kenyatta International Airport" lentum þar kl.06:30 að morgni og þar beið Sammi (maður þórunnar) eftir okkur, skutlaði okkur heim til Þórunnar (sem er stjórnar ABC barnahjálp batteríu hérna úti), borðuðum "morgunmat" og lögðum okkur svo aðeins.
seinni partinn kíktum við út í góða veðrið í Village market! Þvílík áreiti á okkur, bara því við erum hvít þá erum við rík og verðum að kaupa gjörsamlega allt!
labbaði útí sjóppuna í gærkveldi, (erum í vel vernduðu hverfi so no worry) með pippa, freyju og ágúst. mest ghettó sjoppa sem ég hef séð,,lítill gámur fullur af gosi og tvennskonar súkkulaði haha! hittum þennan ljóta kakkarlakka líka..
Í morgun fengum við góða Swahili kennslu og lærðum nokkur vel valin orð !
Þegar við fórum og hittum krakkana í Abc skólanum "Star of Hope" tók á móti okkur mikill gleðisöngur og dans! svakaleg tilfinning að sjá öll þessi fögru andlit og svona mikla gleði í allri þessari fátækt! mikil litagleði og fjör, þau leiddu okkur inn í stóran sal og þar var sko dansað með hástöfum, og drógu þau okkur upp með sér, ég á ekki til orð yfir þessu..vorum öll við það að tárast úr gleði þarna!
öll þessi 170 börn alveg dýrka það að láta að taka myndir af sér, þau eru svo hrædd um að við munum gleyma þeim. æjj þessar elskur!
bless í bili og Guð blessi þig!
- comments