Profile
Blog
Photos
Videos
Bestu staðir sem ég hef komið á og besta upplifunin
Reykjavik, Iceland
Nú hef ég ferðast þó nokkuð mikið og séð allan andskotann. Það er þó eitt sem hefur nánast alltaf verið vonbrigði á öllum mínum ferðalögum en það er að sjá mannvirkið eða umhverfið sem staðurinn er frægastur fyrir. Dæmi um það er Óperhúsið í Sydney, London Eye, Brandenburg hliðið í Berlin, Eiffel turninn, Petronas Towers í Kuala Lumpur og fl.
Það eru þó fjórir hlutir sem ég hef séð sem vorur rosalegir. Þegar ég sá þá í fyrsta skipti gapti ég að undrun og í sumum tilvikum fylgdi eitt hátt öskur með "vááááá".
Ég hef ákveðið að lista þessa staði upp og lýsa því hvað mér fannst svona merkilegt við þá. Tekið skal fram að þeir eru ekki settir fram í neinni ákveðni röð!
La Sagrada Família - Barcelona
Ég sá kirkjuna fyrst á svona Tourist bus og ég bókstaflega gapti. Hún var eitthvað svo skrítin en samt svo fáránlega töfrandi. Ekki lík einni einustu byggingu sem ég hafði séð. Minnti mig á einhverja kirkju í einhverju epísku ævintýri.
Útsýnið af Twin Towers í Tokyo
Þetta var bara "venjulegur" dagur í Tokyo. Við vissum ekkert hvað við áttum að gera og einn japaninn stakk upp á að fara í Twin Towers. Ég vissi í raun ekki af neinum tvíbura turnum í Tokyo og alls ekki hverju ég átti von á. Þegar ég kom upp sá bókstaflega yfir alla Tokyo. Ég bósktaflega hoppaði og öskraði af spenningi. Útsýnið var ótrúlegt. Svo virtust fáir ferðamenn vita af þessum stað og því engin þar nema nokkur japönsk pör í rómantískum faðmlögum.
Það er vert að nefna að eitt þekktasta mannvirkið í Tokyo er Tokyo Tower og ferðamenn flykkjast þangað. Allir vilja fara upp og því fylgja raðir og leiðindi. Því ef þú ætlar að njóta þess í alvöru að sjá turninn og/eða útsýnið yfir Tokyo ættiru að gera það frá tvíbura turninum. Myndin sem fylgir tók ég.
Gullfoss
Ég sá Gullfoss fyrst þegar ég var 19 ára. Þannig ég get dæmt þann stað jafnfætis við alla aðra sem ég hef séð. Og verð ég að segja að þegar ég kom þangað fyrst þá var ég agndofa. Þetta var eitthvað svo fáránlega stórt, mikið og fáránlega fallegt.
Þörungarnir í vatninu sem lýstust upp við snertingu ásamt fullkomlega stjórnubjörtum himni.
Þetta er í raun ástæðan af hverju ég ákvað að skrifa þessa færslu. Ég var eitthvað á netinu og fann þessa mynd. Hún er af þessu fyrirbæri sem ég hélt að væri í sjálfu sér ekki hægt að mynda.
Við vorum búnir að vera á rosalega ferðalagi um Fiji eyjar og var þetta endirinn. Við vorum á árabáti og allt í einu byrjaði sjórinn að lýsast upp. Þá voru það þörungarnir. Það var fullkomlega stjörnubjart og heitur vindur. Þetta var ótrúleg upplifun. Eitt það fallegast sem ég hef séð.
Kafað með höfrungum - Poor Knights Islands
Þetta er ekki beint einn staður heldur mun frekar upplifun. Og möguelga sú besta sem ég á.
Þegar ég fór fyrst að kafa þá var ég mjög heppinn því í nokkurn tíma höfðu höfrungar fyllt bátnum. Við fengum að vita að ef við værum mjög heppin þá myndu þeir staldra við á meðan við værum útí og kafa með okkur. Sem og gerðist. Það að vera kafa (sem er nóg upplifun fyrir sig) og sjá svo höfrung synda í metra fjarlægð frá manni og skoða mann er það rosalegasta sem ég hef gert.
Þetta eru þeir fjórir staðir og ein upplifun sem höfðu mest áhrif á mig. Og ef þú hefur möguleika á að sjá þá er skammarlegt að láta það fram hjá sér fara. Aðrir staðir sem er vert að nefna eru: Sjá sólarupprisuna á Angor Wat, "glow-worms" í Waitomo Caves í Nýja Sjálandi, Luna bar í Kuala Lumpur og Burj Khalifa í Dubai.
- comments