Profile
Blog
Photos
Videos
Jaeja, tha er komid ad lokum i Indlandi! Vid bjuggumst ekki vid miklu i fyrstu thegar vid komumst loksins a fyrsta hotelid i Nyju Deli thar sem hundar geltu allan daginn og spangoludu allar nottina og vid vorum umkringd betlurum, svindlurum og dopistum.. Frabaert.. vid semsagt byrjudum a thvi ad fasta i ruman solarhring adur en vid treystum okkur i ad panta mat af matsedli hotelsins (hotelid pantadi matinn sidan af odru hoteli) og satum inni a hotelherbergi og spiludum i naestum tvo solarhringa. Hotelherbergid var hrikalegt. Loftid inni a badi var thakid svortum myglusveppi og thad voru einhverjar ogedslegar gular fotur i sturtunni, thad var svo mikill raki inni a badi ad thad safnadist saman sundlaug a golfinu, thangad inn forum vid bara i brynustu naud og BARA i skom!
2 Dogum eftir komu okkar til Indlands logdum vid af stad i svokallada Golden Triangle ferd med einkabilstjora sem hun Kristin Bjork maelti med eftir ad hafa verid i henni stuttu adur (takk, thetta bjargadi ferdinni!). Thar kynntumst vid Rakesh sem var bilstjorinn okkar i 4 daga og fannst mjoooog gaman ad segja fra sinu landi og menningu, hann var aedi! Hotelin voru miiiiiikid betri en thetta fyrsta og thad var mjog gaman ad skoda hallirnar og virkin!
A degi 1 i gullna thrihyrningnum logdum vid af stad sem leid la ur Delhi til Jaipur, thar sem vid attum ad skoda hallir og virki, vid vorum 2 naetur i Jaipur og skodudum borgina vel og margar hallir thar til ad skoda. Thad er eiginlega thad eina sem vid skodudum allan thennan tima, hallir og byggingar. A degi 3 heldum vid til Agra, sem er hvad thekktust fyrir hlutverk sitt i Aladdin myndunum, eda fyrir ad hysa Taj Mahal og hafa verid hofudborg Indlands i fjoldamorg ar. En adur en vid komum til Agra stoppudum vid i Fatehpur Sikri sem var hofudborg indlands i 15 ar fyrir rumlega 300 arum sidan, vona ad vid seum ekki ad fara med einhverja vitleysu herna, ad skoda einn eina hollina, sem var byggd thegar Fatehpur Sikri var gerd ad hofudborg.
A sidasta deginum, eda degi 4 vorum vid komin til Agra og forum beint ad skoda hina fraegu Taj Mahal, eitt af sjo undrum veraldar. A eftir Stodvarfirdi. Svo keyrdum vid til Delhi og erum a mjog godu hoteli herna, minnir eilitid a IKEA.
Maturinn herna a Indlandi er rooosalega godur, vid erum nanast buin ad lifa a Nan braudi og retti sem heitir Paneer og er ostagraenmetisrettur med sosu, haegt ad fa hann i allskonar utgafum!
Hinsvegar er umferdin ekki alveg upp a sitt besta herna... Unnur lamadist nanast i loppunum vid ad sitja i bil i rumar 15 klukkustundir her i Indlandi thar sem bilar trodast fram ur hvor odrum og flauta latlaust, svo getur madur allt eins buist vid thvi ad sja bila koma a moti umferdinni, no prooooblem..! A Thjodveginum her er lika dyragardur, eiginlega... Medfram bilunum eru trilljon manneskjur, hestar, hundrad hundar, apar, ulfaldar, kindur, geitur, asnar, beljur, uxar, filar, svin og margt fleira! Bilstjorinn var lika svo godur ad keyra okkur a stad thar sem Indverjar fara til ad gefa opunum mat svo folkinu gangi betur i naesta lifi. Thar keyptum vid thrja hnetupoka af 10 ara strakum sem toku svo hnetupokana af okkur, lobbudu med okkur upp brekkuna og skommtudu okkur hnetum a milli thess sem their gafu opunum hnetur sjalfir og atu hneturnar... svo vorum vid ad verda komin nidur brekkuna aftur (Strakarnir alltaf a haelum okkar) tha segir annar theirra ad nu seum vid komin a stadinn thar sem vid eigum ad borga theim.. Vid vorum nu buin ad akveda ad gefa theim sma thjorfe fyrir omakid (sem vid badum ekki um og vildum ekki...) eeeen their sogdu ad thad kostadi sko meira en 20 rupiur ad fa fylgd tharna, vanalega fengu their 100. Thannig ad vid mattum gjora svo vel ad borga theim, brosa bara og hypja okkur i burtu.
Nu er folk farid ad bida eftir tolvunni herna a hotelinu og vid aetlum ad segja thetta gott, gatum loksins sett inn nokkrar myndir hingad, heilar 9!
A morgun forum vid svo til Thailands og thar forum vid a hid langthrada vatnahotel a River Kwai!
Hlokkum til ad sja ykkur oll i vor thegar vid erum ordin tonud! :)
Til hamingju med daginn pabbi!!
P.s. Allt brunnid er flagnad og farid, ekkert nema brunt eftir!!
- comments
Mammagull Góða ferð til Thilands :) hlakka til að lesa bloggið ykkar um River Kwai
bvg Þetta er skemmtileg ferðasaga. Góða ferð til Tælands.
þbn Takk fyrir þetta, Góða ferð til Tælands, hlakka til að heyra í ykkur þar. Knús á ykkur.
Erna Loksins blogg og það svona líka skemmtilegt blogg, ég var orðin heldur óþreyjufull (ef þið tókuð ekki eftir því, ehe). Góða ferð til Tælands, ég er enn með must do í Tælandi listann sem Nína skrifaði hér í tölvunni ef ykkur vantar eintak. :)
unnur Haha takk Erna, vid erum med utprentad eintak lika! :D
Sigurbjörg Æði, gangi ykkur vel!!!